Hugur - 01.06.2009, Side 132
130
Róbert Jack
elesar en Platons, væru það nokkur tíðindi ef hann teldi heimspeki Platons for-
heimskandi, ekki síst þar sem það var við fótskör Platons sem Aristóteles nam
fræðin.
Með dollaramerki í augum
Bandaríski blaðamaðurinn Steve Salerno hefur óh'kt Kristjáni Kristjánssyni skrifað
heila bókgegn sjálfshjálpargeiranum, SHAM: How the Self-Help Movement Made
America Helpless. Þar virðist Salerno helst tengja sjálfshjálparfræði við ráðleggingar
og óhófleg loforð um árangur,20 frekar en lágstemmdari, alþýðleg fræðirit, eins og
rit Golemans til dæmis sem ekki er nefnt í bókinni. Hann einskorðar sig þó ekki
við rit sjálfshjálparfræðinganna heldur talar um fyrirlestrahald þeirra, framgöngu
í fjölmiðlum, námskeiðahald, hópráðgjöf ýmiskonar og markþjálfun, ásamt því að
tala um samtök eins og AA-samtökin. Hugmynd hans er því breið og hann kemur
víða við, en hreyfiafl geirans er að hans áliti gróðafíkn sjálfshjálparfræðinganna.21
Fyrri hluti bókar Salernos fjallar um fólsku einstaka sjálfshjálparfræðinga og má
þar greina sögur hans í tvennt eftir því hvort þær fjalla um ósamræmi orða og æðis
eða einfaldlega heimskulega framgöngu. Sérstaklega hið fyrra flokkast undir pers-
ónurök (ad hominem-iök) sem mér sem ungum heimspekinema var kennt að væru
ógild. Það vekur þó óneitanlega spurningar þegar fólk lifir ekki í samræmi við
kenningar sínar eða virðist hafa bresti í persónuleika sínum. Þannig segir Salerno
frá því að Laura Schlessinger berjist gegn klámi, en hafi setið nakin fyrir; gagnrýni
kynlíf utan hjónabands þótt hún hafi stundað sh'kt; og hampi fjölskyldutengslum
en hafi haft það h'tið samband við móður sína að hún hafi ekki saknað hennar þótt
hún lægi lengi myrt í íbúð sinni.22 Þá hefiir Salerno það eftir fyrrverandi konu
Phils McGraw að hann hafi haldið fram hjá henni og sé valdasjúkur.23 Og hann
segir jafnframt að John Gray hafi fengið doktorsprófið úr vafasömum háskóla.24
Ekkert af þessu virkar traustvekjandi og Salerno nefnir margt fleira í þessum
dúr. Eftir stendur þó að Salerno segir næsta lítið efnislega um störf sjálfshjálpar-
fræðinganna. Að vísu má nefna dæmi eins og að McGraw hafi sagt foreldrum að
af 14 einkennum raðmorðingja hafi sonur þeirra níu en Jeffrey Dahmer hafi haft
sjö;25 og ósannaðar fullyrðingar Tims Robbins um orkutíðni matvæla og um að
QLink-hálsmenið verji mann fyrir geislun frá farsímum.26 Þetta orkar tvímæhs en
þetta er svo lítið brot af því sem þessir menn gera og segja að það er varla hægt að
mynda sér marktæka skoðun á þeim út frá þessari gagnrýni.
Hin efnislega umfjöllun um hugmyndir sjálfshjálparfræðinga er reyndar í mý-
flugumynd í bók Salernos, því síðari hluti hennar fjallar fyrst og fremst um meint
áhrif sjálfshjálparfræða. Hér er um fjóra kafla að ræða og fjalla þeir í meginatriðum
20 Salerno (2005: 2).
21 Salerno (2005: 2).
22 Salerno (2005: 44).
23 Salerno (2005: 72).
24 Salerno (2005:53).
25 Salerno (2005: 69).
26 Salerno (2005: 79 og 82).