Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Blaðsíða 20
við félagsmenn, sérstaklega að því er varðar kjaramál, og aðstoð við félaga sem eru ekki
á föstum kjarasamningum. Bætt var við upplýsingum á heimasíðu félaga. Rætt var um
fjöldauppsagnir og hvernig bregðast megi við þeim.
Unnið var að útgáfu kjarabókar, en mikil vinna fór í að samlesa kjarasamninga og yfir-
fara. Kjarabókin var gefin út í lok október 2002.
Orlofsmál voru ofarlega á döfinni og óskaði stjórnin eftir því að allir meðlimir KTFI yrðu
meðlimir í OBHM. Lögð var fram tillaga um þetta mál fyrir stjórn OBHM. Gerður var
samningur um aðild KTFÍ að OBHM.
Unnið var að rekstraráætlun næsta starfsárs og farið yfir reikninga og skýrslur undir-
búnar.
Kjarakönnun var ekki gefin út í bókarformi, en hún var aftur á móti birt á heimasíðu
KTFÍ.
Gústaf A. Hjaltason, formaður KTFÍ
STFÍ - stjórnendur og sjálfstætt starfandi tæknifræðingar
Stjórnin var endurkjörin: Gunnar Sæmundsson formaður, Brynjólfur Smárason ritari og
Magnús Þór Karlsson gjaldkeri. Fyrir aðalfund hélt Bernhard Bogason, lögfræðingur hjá
KPMG, erindi um nýtt umhverfi í skattamálum fyrirtækja. Stjórn STFÍ hélt fjóra stjórnar-
fundi á yfirstandandi starfsári. Brynjólfur og Magnús skiptust á að sitja stjórnarfundi TFÍ.
Formaður tók virkan þátt í umræðum um framtíð TFÍ ásamt fulltrúum úr stjórn TFÍ og
KTFI. Að mati formanns var þetta mjög gagnleg umræða sem fór fram á þremur löngum
vinnufundum og lauk með því að sett voru fram markmið og leiðir til þess að ná settum
markmiðum. Ákveðið var að setja á stofn nefnd sem á að fylgja málinu eftir.
Forsvarsmaður nefndarinnar var valinn Einar H. Jónsson, þáverandi varaformaður TFI.
STFÍ var stofnað í október 1996 eða fyrir sjö árum síðan. Fyrirmyndin kemur frá
Danmörku, IDA „Ingeniörforeningen i Danmark". IDA er félag fyrir alla tækni- og verk-
fræðinga, bæði launþega og stjórnendur og sjálfstætt starfandi.
Tækni- og verkfræðingar á íslandi eru í mörgum félögum en þau helstu eru: TFI sem
Stofnað var árið 1960. KTFÍ og STFÍ eru sjálfstæð félög innan TFI með sjálfstæðar stjórnir
og sjálfstæðan fjárhag. Félagar í TFÍ eru fyrst og fremst tæknifræðingar með B.Sc. mennt-
un. VFI, sem er fagfélag verkfræðinga, var stofnað árið 1912. Félagar í VFÍ eru með B.Sc.
og/eða M.Sc. menntun. SV er stéttarfélag verkfræðinga og hefur ekki bein tengsl við VFÍ.
Það er mjög mikilvægt að á allra næstu árum verði sú breyting að þessir aðilar sameinist
í einu félagi sem hefur á að skipa faghópum og hagsmunahópum eftir þörfum. Með því
skapast mikið hagræði og markvissari vinna í þágu þessarar stéttar.
Gott dæmi um það hvernig tæknifræðingar og verkfræðingar geta unnið vel saman að
sameiginlegum hagsmunum er FRV, sem er félag ráðgjafarverkfræðinga. í FRV eru félag-
ar fyrirtæki sem eru rekin á ábyrgð tæknifræðinga og verkfræðinga. Tæknifræðingar og
verkfræðingar geta fengið viðurkenningu sem FRV-ráðgjafar að uppfylltum vissum skil-
yrðum.
Það sem hefur gert menntun tæknifræðinga árangursríka er að námið er verkefnatengt,
þ.e. nemendur vinna að mörgum verkefnum í náminu þar sem fræðin eru notuð til að
finna raunhæfar lausnir á verkefnum við hönnun, rekstur o.s.frv. Þetta er forsenda þess
að tæknifræðingar með B.Sc. menntun fá viðurkenningu opinberra aðila sem hönnuðir.
1 61 Arbók VFl/TFl 2002