Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Blaðsíða 71
Fjárfesting hins opinbera
Fjárfesting hins opinbera nær til allra framkvæmda ríkis og sveitarfélaga svo sem við
vegi, brýr, holræsi og tengd mannvirki, byggingar og ýmis önnur mannvirki.
Framkvæmdir ýmissa opinberra fyrirtækja svo sem við orkumannvirki, rafveitur,
vatnsveitur, hitaveitur, hafnir, flugvelli o.fl. flokkast hins vegar með atvinnuvegum.
Heildarframlag til fjárfestinga ríkisins nam ríflega 17 milljörðum króna á árinu 2002.
Vöruútflutningur
Vörur voru fluttar út fyrir rúmlega 203 milljarða króna árið 2002 sem er tæplega 7 millj-
arða króna aukning frá 2001. Að magni til jókst vöruútflutningur um 6% en verðmæta-
aukningin var helmingi minni, eða rúmlega 3%. Þessi þróun endurspeglar um 2%
verðlækkun útflutningsafurða á árinu 2002.
Sjávarafurðir vógu sem fyrr langmest í vöruútflutningnum, eða um 63% af heildar-
verðmæti. Utflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um rúma 5 milljarða króna en magn-
breyting milli áranna var rúm 4%.
Alútflutningur svaraði til tæplega fimmtungs af heildarverðmæti útflutnings á síðasta
ári. Heildarverðmæti álútflutnings dróst saman um tæp 2% á árinu. Að magni til jókst
álútflutningur þó um tæplega 10% en tæplega 11% verðlækkun vó þar upp á móti. Útflutn-
ingur annarra iðnaðarvara nam um 14% af heildarvöruútflutningi síðasta árs. Stórir liðir
í þessum flokki eru lyf, lækningatæki og rafeindavogir auk kísiljárns. Útflutningur lyfja
nær tvöfaldaðist að magni til milli áranna en verðmæti þeirra jókst um 74% og var um
6 milljarðar króna á síðasta ári. Lækningatæki voru flutt út fyrir um 3 milljnrða króna í
fyrra og nam magnbreytingin 30%. Útflutningur rafeindavoga hefur aftur á móti dregist
saman milli áranna um 33% að magni til og nam verðmæti útflutnings um 2 milljörðum
króna.
Vöruinnflutningur
Heildarverðmæti vöruinnflutnings á árinu 2002 nam tæplega 191 milljarði króna sem er
um 12 milljarða króna lækkun frá árinu 2001. Að magni til nam samdrátturinn rúmlega
3%. Almennur innflutningur, þ.e. án skipa og flugvéla, dróst saman um 10 milljarða
króna milli áranna 2001 og 2002. Hér vó þyngst að innflutningur fjárfestingavara dróst
saman um 8 milljarða króna, eða um 16% að raungildi. Heildarinnflutningur neysluvara
dróst hins vegar aðeins lítillega saman árið 2002, eða um 1%, samanborið við 10% sam-
drátt árið 2001. Mestur samdráttur var í innflutningi varanlegra og hálfvaranlegra
neysluvara en til þeirra flokkast til dæmis heimilistæki og fatnaður. Verðmæti varanlegra
neysluvara dróst saman um 6% og hálfvaranlegra um 8%.
Vöruskiptajöfnuður
Á síðasta ári var afgangur á vöruskiptajöfnuði sem nam 12Vi milljarði króna eða 1,6% af
landsframleiðslu. Þetta er mikill viðsnúningur frá undanförnum árum enda hefur ekki
verið afgangur á vöruskiptajöfnuði síðan árið 1997 og árið 2000 var hann neikvæður um
6% af landsframleiðslu. Þessi umskipti stafa bæði af minni innlendri eftirspurn og
auknum útflutningi. Þannig hefur vöruútflutningur aukist um 14% frá árinu 2000 en inn-
flutningur dregist saman um 13%, hvort tveggja reiknað á föstu verðlagi.
Þjónustujöfnuður
Stærstu liðir þjónustuviðskipta gagnvart útlöndum eru samgöngur og ferðalög en til
hans flokkast einnig hugbúnaðargerð tölvu og viðskiptaþjónusta, menningarstarfsemi
o.fl. Þjónustujöfnuður var jákvæður á árinu 2002 um rúman einn milljarð króna saman-
6 7
Tækniannáll