Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Blaðsíða 229
staðsetning RVA í nokkuð fjarlægu þriðja sæti. Ljóst
er að mat á fórnarkostnaði skiptir miklu í þessu
samhengi. Fram hafa komið þær skoðanir hjá
sumum starfsmönnum Reykjavíkurborgar, að mat á
verðmæti landsins undir núverandi flugvelli hafi
verið of hátt. Ef þetta mat myndi lækka um 50%
(sumir vilja lækka matið enn meira), myndi núvirtur
kostnaður lækka í 13,7 milljarða króna. Þannig er
ljóst, að valið er milli þessara þriggja valkosta, þ.e.
KIA, HHA og RVA 50%, og fer það eftir því hvort
menn meta meira, hagkvæmnina eða umhverfis-
áhrifin.
Næmnigreining
Vogtölur hinna mismunandi sviða eiga að endur-
spegla samfélagsleg eða pólitísk viðhorf (Sondheim,
1978) og lúta öðrum lögmálum en einkunnir sér-
fræðinga fyrir einstaka umhverfisþætti. Ef vog-
tölurnar, sem hinir ýmsu aðilar lögðu til (tafla 2), eru
skoðaðar, sést að þær eru nokkuð mismunandi.
Þessar vogtölur eru grundvallaratriði við útreikning
á EQI og því áhugavert að kanna næmni þeirra.
Mynd 4a sýnir hvernig EQI breytist ef vægi öryggis-
þáttar er breytt, en summu vogtalna haldið jafnt 1,0.
Lágt vægi öryggis, t.d. á bilinu 0-0,5, styrkir flutning
innanlandsflugsins til Keflavíkur. Aukin áhersla á
öryggi styrkir hins vegar núverandi staðsetningu
vegna vægis umferðarslysa. Benda má á að ákvörð-
unin um breikkun á Keflavíkurvegi styrkir flutning
flugvallarins (kostir KIA og HHA) vegna styttri
ferðatíma á landi og aukins umferðaröryggis. A
mynd 4b er vægi umhverfisáhrifa breytt. Hækkað
vægi bitnar á kostum RLA og HHA meðan núver-
andi flugvellir halda velli, einkum vegna þess að
lítið er lagt undir af nýju landi. Landfylling í Skerja-
firði RLA verður versti kosturinn þegar vægi
umhverfisáhrifa er aukið.
Breytingar á vægi félagslega þáttarins eru loks
skoðaðar á mynd 4c. í ljós kemur að þær hafa lítil
áhrif hvað meginniðurstöður varðar því umhverfis-
einkunnin breytist lítið.
Lokaorð
I þessari grein hefur aðferðarfræði, sem er vel þekkt
í aðgerðargreiningu, verið notuð til að meta mis-
munandi valkosti hvað varðar staðsetningu mið-
stöðvar innanlandsflugs á íslandi. Umhverfisgæði
fyrir hvern valkost voru reiknuð, eftir að búið var að
skilgreina helstu efnahagslega, félagslega og
Næmnigreining
Öryggi
RVA
-RLA
- HHA
-KIA
Vogtölur mikilvægis; breytingar frá grunngildi
(0,66)
Mynd4a. Breytingará umhverfisgæðum
valkosta eftir mismunandi vægi öryggis.
Næmnigreining
Umhverfisáhrif
- RVA
- RLA
- HHA
- KIA
Vogtölur mikilvægis; breytingar frá grunngildi
(0,17)
Mynd4b. Breytingar á umhverfisgæðum val-
kosta eftir mismunandi vægi umhverfisþátta.
r~ n
Næmnigreining
Félagsleg áhrif
Vogtölur mikllvægis; breytingar frá grunngildi
Mynd 4c. Breytingar á umhverfisgæðum val-
kosta eftir mismunandi vægi félagslegra þátta.
Ritrýndar vísindagreinar i225