Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Blaðsíða 264
Kostnaðargreining
Rekstrarkostnaður er reiknaður sem orkukostnaður vegna viðnáms í pípukerfinu. Aflið
sem þarf til að dæla vatninu er
P = pgQAH / tjd (10)
og orkukostnaður fyrir na ár er á núvirði
eT = e„(l-l/(l+/)n„) / i (11)
þar sem e„ = Phkh er orkukostnaður á ári, Q (m3/sek) er streymi vökva samkvæmt
streymisgreiningu, r\D er nýtni dælu og rafmótors og AH (m) er munur á þrýstihæð í
kerfinu. Rekstrartími á ári er táknaður með h (klst) og orkuverð er kt, (kr / (W klst)),
afskriftartími er na og ávöxtunarkrafa er i.
Stofnkostnaður er
ST = Z Lp, kpt + £ nbt kbt + £ ntt ktt + £ nvt kvt + £ nDt kDt (12)
þar sem Lpt er lengd pípu og kpt er verð pípu á lengdarmetra fyrir ákveðna þykkt. Táknin
nbt, ntt, nvt eru fjöldi af pípubeygjum, tengistykkjum og lokum með ákveðinni þykkt og
verðið er táknað með kbt, ktt og kvt en nDt og kDt eru fjöldi dæla og kostnaður við þær.
Kerfishönnun - Dælustöð og aðveitukerfi
I þessum kafla verður aðferðin sem hér hefur verið kynnt prófuð við hönnun á einföldu
kerfi þ.e. dælustöð og pípukerfi fyrir fjóra notendur. Sett er fram tengslagraflíkan af kerfi
með einingum sem innihalda þekkingu og síðan er gerður samanburður við kerfi þar
sem engin þekking er til staðar. f báðum tilvikum er notað erfðareiknirit til að besta lausn-
ina. Líkur á víxlun eru 80% og á stökkbreytingu 2%. Mynd 5 sýnir táknræna staðsetningu
á inntaki og úttökum kerfisins og eins og þar kemur fram á að dæla vatni frá stað A sem
er tankur yfir í fjögur úttök B, C, D og E. Grunnaðgerð verkefnisins er að koma 80°C
heitu vatni frá einum stað til annars. Undiraðgerðin
felst í því að hanna dælustöð við A sem dælir
ákveðnu magni af vatni í pípum til B, C, D og E. Þar
sem pláss leyfir ekki þensluhlykki eru hér notuð
þenslustykki og þar sem pípan er á byggðu svæði er
hún niðurgrafin.
A myndinni er sýnd ein lausn á legu pípunnar en
pípa á milli punkta getur verið lóðrétt, lárétt og á
ská. Hver punktur hefur eingöngu eina aðstreymis-
pípu en getur verið með núll til þrjár frástreymis-
pípur. Hér er því ekki boðið upp á lausn með
hringstreymi.
Gögn sem þurfa að liggja fyrir til að setja upp líkan af kerfinu eru:
1) Kennistærðir fyrir dælur þ.e. dæluferlar, nýtniferlar og verð [20].
2) Þrýstistýring þ.e. lokastýring, af/á-stýring eða hraðastýring.
3) Kennistærðir fyrir pípueiningar, þ.e. þvermál, þykktir, verð [20] og hrýfi sem er
k = 46xl0'6 (m)
4) Kennistærðir fyrir loka, þ.e. þvermál, þrýstiflokkar og verð [20].
5) Kennistærðir fyrir pípubeygjur, þ.e. þvermál, þrýstiflokkar og verð [20].
6) Kennistærðir fyrir tengistykki, þ.e. þvermál, þrýstiflokkar og verð [20].
2 6 0 | Arbók VFl/TFl 2003