Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Blaðsíða 59
Jón Hallsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri
sjóðsins, lét af störfum í lok september, er hann varð
sjötugur. Jón starfaði hjá sjóðnum í rúm 22 ár, þar af
sem framkvæmdastjóri sjóðsins í tuttugu og hálft ár.
Stjórn sjóðsins hélt honum kveðjusamsæti og
þakkaði fyrir mikið og gott starf hans í þágu
sjóðsins.
í lok ársins 2002 áttu 2.703 sjóðfélagar réttindi í
sjóðnum, en 2.190 sjóðfélagar greiddu iðgjöld í
sjóðinn á árinu. Sjóðfélögum fjölgaði um 147 á árinu.
Að jafnaði greiddu 1.962 sjóðfélagar reglulega mán-
aðargreiðslur í sjóðinn. Stefna sjóðsins er að fjölga
sjóðfélögum og er stjórn sjóðsins heimilt að veita
þeim sem hafa lokið námi úr Háskóla íslands með 90 eininga B.S. gráðu eða sambærilegu
námi inngöngu í sjóðinn auk allra verkfræðinga sem fá sjálfkrafa aðild að sjóðnum.
í október 2002 var gerð viðhorfskönnun meðal sjóðfélaga og hafa niðurstöður könnunar-
innar verið birtar á vefsíðu sjóðsins.
Til sterkra hliða sjóðsins töldust einkum hagstæð lánakjör, traust staða og góður rekstur
sjóðsins, góð ávöxtun og fjárfestingarstefna og samsetning sjóðfélaga. Til veikra hliða
töldust einkum deilur eldri sjóðfélaga við sjóðinn og ágreiningur milli yngri og eldri fé-
laga, léleg ávöxtun og fjárfestingarstefna, smæð sjóðsins og hár rekstrarkostnaður og
lágar lífeyrisgreiðslur.
Almennt var ánægja með þjónustu sjóðsins og upplýsingagjöf, en í könnuninni komu þó
fram ýmsar ábendingar um það sem betur mætti fara. Meirihluti sjóðfélaga var ánægður
með fjárfestingarstefnu sjóðsins og tveir þriðju hlutar sjóðfélaga voru ánægðir með
lánastefnu hans. Anægjan með lánastefnuna birtist einkum meðal hinna yngri sjóðfélaga
en eftir því sem ofar dró í aldri bar á gagnrýni á slaka ávöxtun vegna lágra vaxta.
Könnun sem þessi kemur stjórn sjóðsins og starfsmönnum að góðum notum, ekki síst í
því að greina hvar úrbóta er þörf og hvaða þættir í starfseminni skipta sjóðfélaga mestu
máli.
Alltaf má gera betur í daglegum rekstri sjóðsins og stjórn og starfsmenn hafa jafnt og þétt
sótt fram í þeim efnum. Má þar nefna að leitast hefur verið við að bæta og efla samskipti
við sjóðfélaga, m.a. með bættri upplýsingagjöf og þjónustu og endurbótum á tölvu-
kerfum sem stuðla að auknum afköstum og hagkvæmari rekstri þegar fram í sækir. Á
síðastliðnum vetri hélt sjóðurinn þrjú fræðslunámskeið fyrir sjóðfélaga sem verða fastur
liður í starfinu héðan í frá. Og þessa dagana er verið að opna sjóðfélögum aðgang að upp-
lýsingum um iðgjöld og réttindi á vefsíðu sjóðsins. Getur þá hver og einn fylgst með
hreyfingum og stöðu hvenær sem hentar, rétt eins og í heimabanka.
Stjórn sjóðsins var þannig skipuð á því starfsári sem nú er að ljúka: Eysteinn Haraldsson
formaður, Jónas Bjarnason varaformaður og Egill Skúli Ingibergsson, Guðbrandur
Guðmundsson og Rúnar Sigmarsson meðstjórnendur.
Frá síðasta aðalfundi hafa verið haldnir 13 stjórnarfundir, auk þess sem stjórnin hefur átt
nokkra sérstaka fundi um fjárfestingar sjóðsins, m.a. með fjármálafyrirtækjum og ráð-
gjöfum.
Stefán Halldórsson rekstrarhagfræðingur
framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verkfræðinga.
Félagsmál Vfl/TFl