Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Blaðsíða 82
HELSTU FRAMKVÆMDIR
Landsvirkjun
Framkvæmdir: Öllum frágangi við Vatnsfellsvirkjun (90 MW) lauk að mestu á árinu
2002. Undirbúningur við Búðarhálsvirkjun hófst haustið 2001 með byggingu brúar á
Tungnaá. Framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun hófust síðsumars 2002. Um var að ræða
m.a. vega- og brúargerð og rafvæðingu vinnusvæðis en einnig gerð aðkomuganga að hjá-
rennslisgöngum Kárahnjúkastíflu og vinna við munna aðkomuganga að aðrennslisgögnum.
Endurbætur á virkjunum: Nánast er lokið við endurbætur þær sem staðið hafa yfir í
Sogsvirkjunum mörg undanfarin ár. Einnig var lokið endurbótum á Hrauneyjafossstöð
og í Búrfellsstöð. Frágangi Kröfluvirkjunar lauk á árinu 2002. Áfram var niðurdælt
frárennslisvatni í holu 26 og lofar það góðu. Ein aflmesta gufuhola landsins, KJ-34, er
tengd Kröfluvirkjun. Vorið 2002 var byrjað að lagfæra og styrkja mannvirkin við
Sauðafellslón og Þórisós, samhliða stækkun á vatnsborði Þórisvatns um 2 m í 579 m y.s.
Orkuflutningskerfið: Byrjað var á endurnýjun 72,5 kV tengivirkis við Laxá. Nýja tengi-
virkið er innanhúss og leysir af hólmi gamalt og úrelt útivirki - miðað við kröfur til
umhverfismála og afhendingaröryggis. Lokið var að fullu frágangi við nýja 245 kV tengi-
virkið við Búrfell. Einnig lauk endurbótum á stjórn- og varnarbúnaði Í45kV tengivirk-
isins við Kröflu.
Orkuveita Reykjavíkur
Fyrst sameinuðust Akranesveita með Andakílsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur 1. des-
ember 2001 og síðan Orkuveita Reykjavíkur, Hitaveita Borgarness, Hitaveita Akraness og
Borgarfjarðar frá 1. janúar 2002. Áðurnefndar veitur á Akranesi og í Borgarfirði fá heita
vatnið frá Deildartunguhver í Reykholtsdal í Borgarfirði. Með sameiningunni eignaðist
orkuveitan einnig fuilbúnar vinnsluholur með djúpdæium í Laugarholti og á Bæ í Bæjar-
sveit og mælingarholur á Hellum í Bæjarsveit, Ákranesi, Innrahólmi og Kvíanesi. Loks í
byrjun apríl 2002 eignaðist Orkuveita Reykjavíkur Hitaveitu Norðdælinga á Bifröst og
nágrenni að Svartagili í Norðurárdal. Tvær vinnsluholur, frá 1991 og 1992, þjóna veit-
unni, önnur á Bifröst en hin á Svartagili.
Orkuveitan lagði nýja aðveituæð fyrir heita vatnið á Kjalarnesi og dreifikerfi í nýju
íbúðarhverfin í Grafarholti, Salahverfi í Kópavogi og Ásland í Hafnarfirði. Einnig voru
dreifikerfin endurnýjuð í nokkrum götum í Smáíbúðahverfiinu og í Kvosinni, á milli
Landakotshæðar og Skólavörðuholtsins. Nýjasta gasvélin (850kVA) í Álfsnesi framleiddi
rafmagn úr haugagasi allt árið 2002. Haldið var áfram borunum eftir gufu á Hellisheiði
vegna fyrirhugaðar virkjunar. Lokið var við þrjár gufuholur (HE-5, 6 og 7), þar af eru
tvær skáholur. Allar eru yfir 2000 metra djúpar. Einnig var boruð 21 hola til mælinga á
grunnvatnsborði á Hellisheiði.
Rafmagnsveitur ríkisins
Endurnýjaðar voru 33 kV línur með 24 kV streng frá Laxárvatnsvirkjun að Sveinsstöðum
í Þingi og frá Smyrlabjargaárvirkjun austur að Hornafjarðarfljóti. Endurnýjuð var 11 kV
lína til Bakkafjarðar með lagningu 24 kV strengs frá Þórshöfn á Langanesi. Ný aðveitustöð
var byggð á Seyðisfirði m.a. vegna sölu á ótryggðu rafmagni til verksmiðju SR-mjöls hf.
Unnið var að endurnýjun dreifikerfa í sveitum og þéttbýli auk þess sem áfram var haldið
rafvæðingu sumarbústaðahverfa.
Orkubú Vestfjarða hf.
Rafstrengir voru grafnir í jörð í Önundarfirði en piægðir niður í Arnarfirði,
Steingrímsfirði og í Geiradal í Reykhólahreppi, samtals 12 km. Orkubú Vestfjarða og
7 81 Arbók VFl/TFl 2003