Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Blaðsíða 250
1
í lýsingu Rúríar á Fyssu segir að grunnhugmynd verksins séu náttúruöflin eins og þau
birtast á Islandi, meðal annars hreyfingar jarðskorpunnar. Þegar jörðin rifnar myndast
sprungur og gjár, berggangar verða til í gosum, jarðlög eyðast og drangar rísa. Vatn safn-
ast í gjárnar, það frýs í glufum og klýfur björg. Vatnsrennslið er síbreytilegt líkt og í nátt-
urunni.
Fyssa samanstendur af tveimur dröngum sem rísa upp úr gjá. í hliðum dranganna
beggja eru fjórir þrýstivatnskassar og hver kassi tengist dælu í tæknirými Fyssu. Dæl-
urnar dæla vatni upp í þrýstivatnskassana og þaðan sprautast vatnið út milli dranganna
með mismunandi þrýstingi. Upp úr drangtoppunum eru þrýstivatnskassar sem tengjast
dælu og stýrilokum í tæknirými. Stöðugur þrýstingur er á streymi vatnsins upp í drang-
toppana en stýrilokarnir eru misopnir þannig að streymi vatnsins fram af drangtopp-
unum er mismikið.
Stýrikerfi Fyssu stjórnar þrýstingi á vatni í þrýstivatnskössum á hliðum dranganna og
rennsli af toppi þeirra, sjá töflu 1 fyrir stýribreytur Fyssu.
Tafla 7. Stýribreytur Fyssu.
A1 Hraðastýring fyrir dælu í neðsta þrýstivatnskassa í dranga A B1 Hraðastýring fyrir dælu í neðsta þrýstivatnskassa í dranga B
A2 Hraðastýring fyrir dælu í næst neðsta þrýstivatnskassa í dranga A B2 Hraðastýring fyrir dælu í næst neðsta þrýstivatnskassa í dranga B
A3 Hraðastýring fyrir dælu í næst efsta þrýstivatnskassa í dranga A B3 Hraðastýring fýrir dælu f næst efsta þrýstivatnskassa (dranga B
A4 Hraðastýring fyrir dælu í efsta þrýstivatnskassa í dranga A B4 Hraðastýring fyrir dælu í efsta þrýstivatnskassa í dranga B
TA Hraðastýring fyrir dælu í þrýstivatnskassa á toppi dranga A TB Hraðastýring fyrir dælu í i þrýstivatnskassa á toppi dranga B
Til þess að stjórna snúningshraða dæla og opnun stýriloka eru notaðar stýrimyndir. Hver
stýrimynd inniheldur ákveðinn fjölda ramma og hver rammi gefur upp stöðu á öllum
stýribreytum í ákveðinn tíma, sjá töflu 2 fyrir dæmi um fyrstu tvo rammana í einni
stýrimynd. Rammarnir mynda svo stýrimyndina með því að keyra hver eftir öðrum.
Fjöldi ramma í stýrimyndum er breytilegur.
Tafla 2. Hluti afstýrimynd fyrir dranga A.
Rammi Tími Fjöldi endurtekninga A1 A2 A3 A4 TA
1 15 1 35,0 14,8-15,2 11,5-12,2 20,0 30
2 15-20 1-2 17,5-18,2 15,0-15,5 11,8-13,0 8,0-9,0 30-45
A þeim stöðum sem gildi eru gefin á einhverju bili, sjá töflu 2, er keyrslugildið valið af
handahófi úr því bili. Rammi 2 getur t.d. keyrt í 15-20 sekúndur og keyrslan getur
endurtekið sig. Gildi á A1-A4 segja til um snúningshraða á viðeigandi dælum fyrir þrýsti-
vatnshólf og TA gefur hlutfallslega opnun á mótorloka fyrir þrýstivatnshólf í drangtoppi.
Þar sem keyrslugildi eru að hluta til valin af handahófi verða stillingar á A1-A4 og TA
breytileg í hvert skipti sem ákveðinn rammi er keyrður. Þetta gefur talsvert meiri fjöl-
breytni í hegðun Fyssu.
I dag keyrir Fyssa ákveðnar stýrimyndir á sumrin og ákveðnar stýrimyndir á veturna.
Skipta verður handvirkt á milii sumar- og vetrarstillingar. Það er ákveðinn ókostur þar
sem Fyssa tekur ekki tillit til umhverfisaðstæðna. Ef Fyssa keyrir dælurnar á fullum
hraða í hávaðaroki getur það valdið vandræðum í umhverfinu í kring. Þess vegna var
ákveðið að skoða hvort ekki væri hægt að láta Fyssu stjórnast af umhverfinu í kringum
hana, það er að segja að láta stýrikerfi hennar meta hita, vindhraða og vindátt og velja
viðeigandi stýrimynd til þess að keyra í hvert skipti. Til þess að það sé hægt þarf að
flokka stýrimyndirnar eftir eiginleikum þeirra.
2 4 6 | Arbók VFl/TFÍ 2003