Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Blaðsíða 28
Jónsdóttir hófu störf haustið 2002. Auk þeirra voru í Kvennanefnd VFÍ Helga Jóhanna
Bjarnadóttir, Jóhanna Harpa Árnadóttir og Kolbrún Reinholdsdóttir sem er formaður
nefndarinnar. Haldnir voru tveir fundir á sfðasta starfsári og einn 25. mars 2003:
13. mars 2002 var fundur um „starfsþróunaráætlanir" („karrier planlægning"). Gestur
fundarins var Drífa Sigurðardóttir, ráðgjafi hjá starfsmannaráðgjöf PriceWaterhouse
Coopers.
30. október 2002 var fundur um sjálfstraust. Gestur fundarins var Linda Bára Lýðsdóttir,
ráðgjafi hjá IMG og stundakennari við HI þar sem hún kennir sálfræði kynjamunar.
3. apríl 2003 var fundur um tengslanet, hvað það er og hvernig má viðhalda því og
styrkja. Gestur fundarins var Hildur Elín Vignir, stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá IMG
Deloitte.
Kvennanefndin hefur tekið þátt í verkefninu „Konur til forystu og jafnara námsval kynj-
anna" frá upphafi. Um tíma stóð til að samstarf yrði um „Tæknidaga VFI/TFÍ", en úr því
varð ekki þar sem „Vísindadagar" komu til sögunnar á vegum SI og HI. Kvennanefnd
átti fulltrúa í undirbúningsnefnd þeirra, þótt hún ætti ekki beina aðild að Vísindasjóði.
Kvennanefndin er einnig með fulltrúa í jafnræðisnefnd VFI.
Siðanefnd VFÍ
Siðanefnd starfsársins var skipuð eftirtöldum mönnum: Vífill Oddsson formaður,
Guðmundur G. Þórarinsson, Jóhann Már Maríusson, Karl Ómar Jónsson og Pétur
Stefánsson. Siðanefnd er skipuð fimm fyrrverandi formönnum VFÍ. Siðanefnd var óbreytt
frá fyrra ári. Ekkert mál barst nefndinni á starfsárunum 2002-2003 og virðist samstaða í
stéttinni almennt vera góð og lítið um ágreiningsefni. Einn fundur var haldinn á árinu.
Rafmagnsverkfræðideild
í stjórn RVFÍ starfsárið 2002-2003 sitja: Gunnar Tryggvason formaður, Guðrún
Rögnvaldardóttir stallari, Lárus Einarsson ritari og Sigþór Sigmarsson gjaldkeri.
Starfsemi félagsins hefur verið með hefðbundnum hætti. Haldin hefur verið einn
almennur fundur í húsakynnum VFÍ og tvö fyrirtæki sótt heim.
Hefðbundnir fundir: Fyrsti haustfundur RVFÍ var haldinn 23. október 2002 í
Verkfræðingahúsinu við Engjateig. Þar kynntu þrjú fyrirtæki og stofnanir sem starfa á
sviði heilbrigðistækni starfsemi sína. Þau eru: Kíne, Heilbrigðistæknifélagið og
Fjarlækningastofnunin á Isafirði. Þess má geta að Fjarlækningastofnunin á ísafirði kynnti
starfsemi sína að hluta til í gegnum fjartæknibúnað.
26. nóvember 2002 heimsótti RVFÍ Flugumferðarstjórn í nýjum húsakynnum sínum. Þar
var kynnt ný ratsjártækni og fluggagnakerfi.
Þriðji fundurinn var heimsókn til stjórnstöðvar Landsvirkjunar við Bústaðaveg 13. mars
2003. Þar var kynnt nýtt orkustjórnkerfi Landsvirkjunar og notkun þess við stýringu á
raforkukerfinu.
Störf Orðanefndar RVFÍ árið 2002: Starf Orðanefndar rafmagnsverkfræðinga mótaðist af
umfjöllun um nokkra kafla Alþjóða raftækniorðasafnsins. Fjallað var um 351. kafla,
Sjálfvirkar stýringar, 371. kafla, Fjarstýringar, 701. kafla, „Telecommunications, Channels
and Networks" og 714. kafla, „Switching and Signalling in Telecommunications".
Nefndarmenn þýddu íðorð 426. kafla Alþjóða raftækniorðasafnsins sem fjallar um raf-
búnað á sprengihættustöðum.
Nefndin naut góðrar samvinnu Önnu Soffíu Hauksdóttur prófessors við íðorðaval.
Þakkað er fyrir þá samvinnu.
Arbók VFl/TFl 2002