Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Qupperneq 167
- " N
Tilgangur og markmið:
Líf, heilsa, umhverfi, eignir
Tilgangur
Brunamálastofnun er þekkingar-, samræmingar-, eftir-
lits- og stjórnsýsluaðili sem vinnur með og fyrir stjórn-
völd, slökkvilið, almenning og aðra hagsmunaaðila að
ráðgjöf, eftirliti og umbótum á sviði brunavarna. Þá er
stofnunin í fyrirsvari fyrir íslands hönd í erlendu sam-
starfi á sviði brunavarna.
Brunavarnir lúta að lífi, heilsu, umhverfi og eignum og
eru þannig mikilvægur öryggisþáttur sem á þátt í
mótun búsetuskilyrða og hefur meðal annars áhrif á
jafnvægi byggðar í landinu.
Brunamálastofnun leitast við að auka og beita til full-
nustu þekkingu og reynslu starfsmanna stofnunar-
innar í þágu brunavarna á íslandi.
Brunamálastofnun er hlekkur í velferðarkerfi íslensks
samfélags og nýtir stofnunin þá fjármuni sem henni er
falið að ráðstafa til forvarna og hagsbóta fyrir hags-
munaaðila.
Hlutverk
Líf: Brunamálastofnun gegnir lykilhlutverki við um-
bætur á sviði brunavarna og gegnir að lögum
frumkvæðishlutverki við samræmingu þeirra krafta
sem að brunavörnum starfa.
Heilsn: Stofnunin gegnir forvarnahlutverki gagnvart
almenningi. Hún stundar öflugt forvarnastarf með það
að leiðarljósi að draga úr tíðni brunaatvika, tjónatíðni
og alvöru tjóna og draga þannig úr líkum á heilsutjóni.
Umhverfi: Brunamálastofnun gegnir stjórnsýsluhlut-
verki við öflun og miðlun þekkingar á sviði viðbragða
við mengunaróhöppum á landi. í því felst að hafa yfir-
umsjón með setningu reglna, leiðbeininga og sam-
ræmingu vinnubragða þannig að slökkvilið bregðist á
vúrkan hátt við mengunaróhöppum.
Eignir - Verðmæti eigna í samfélaginu eykst árlega og
Brunamálastofnun gegnir stóru hlutverki í þeirri keðju
sem ver eignir landsmanna fyrir tjóni. Verðmæti og
gæði íbúðarhúsnæðis hafa aukist en mikil verðmæta-
aukning felst í sífellt flóknara atvinnuhúsnæði þar sem
mikilvæg framleiðslutæki og atvinna manna er í húfi.
Leiðarljós
Að sinna þekkingar-, samræmingar-, eftirlits- og stjórn-
sýsluhlutverki sínu gagnvart stjórnvöldum, slökkvi-
liðum, byggingariðnaði, almenningi og öðrum hags-
munaaðilum þannig að líf, heilsa, umhverfi og eignir
séu varin.
Að styðja aðra aðila í samfélaginu við framkvæmd laga
og reglugerða sem lúta að brunavörnum.
Að sjá til þess að á hverjum tíma sé til þekking og
reynsla hjá stofnuninni sem nýtist til ráðgjafar á sviði
brunavarna og til kennslu og þjálfunar slökkviliðs-
manna.
Að mæta með fullnægjandi hætti öllum eðlilegum
kröfum um góða stjórnsýslu og rétta framkvæmd
verkefna stofnunarinnar á sviði brunavarna.
V___________________________________________________)
Innra starf
Vegna aukinna krafna stjórnvalda um
skilvirkni og hagkvæmni í ríkisrekstri og
vegna margvíslegra nýjunga í slíkum
rekstri hefur verið lögð áhersla á innra
starf stofnunarinnar. Síðastliðið ár lögðu
starfsmenn mikla vinnu í að móta stefnu
Brunamálastofnunar 2002 til 2007 og er
sú stefnumótun nú til umsagnar í
umhverfisráðuney tinu. Starf smanna-
handbók var tekin saman þar sem safnað
er saman ýmsu efni um réttindi og skyld-
ur starfsmannanna. Starfsmannastefna
var sett fram. Það sem af er þessu ári
hefur verið lögð mikil vinna í endur-
skoðun innra starfsins. Komið hefur
verið á fót skjalastjórnunarkerfi í forrit-
inu GoPro og byrjað er að undirbúa
árangursstjórnunarsamning við um-
hverfisráðuneytið. Undirritaður telur
mjög mikilvægt að unnið sé markvisst að
þessum innri málum, bæði vegna
mögulegra aukinna verkefna stofn-
unarinnar og eins vegna aukinna krafna
stjórnvalda um skilvirkni.
Nýir gagnagrunnar
Unnið hefur verið að gerð ýmissa mið-
lægra gagnagrunna til að nýta framfarir í
upplýsingatækni. Má þar nefna útkalls-
skýrslur slökkviliða, þar sem starfsmenn
slökkviliðanna geta fyllt út slíkar
skýrslur beint á netinu og vistað þær
miðlægt. Gagnagrunnurinn er nú kom-
inn í fulla notkun. Til dæmis hefur
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins skráð
öll útköll í grunninn síðan í ársbyrjun
2003. Tekinn hefur verið í notkun gagna-
grunnur fyrir boðunarkerfi viðbragðs-
aðila, sem gerir auðveldara að hafa
nýjustu upplýsingar handhægar og
býður upp á marga möguleika hvað
varðar boðunaráætlanir slökkviliða
landsins. Einnig má nefna að hafin er
vinna við miðlægan gagnagrunn vegna
eldvarnaeftirlits, sem mun gera eld-
varnaeftirlitsskýrslur og forvarnastarf á
byggingasviði einsleitnara og markviss-
ara á landsvísu. Slíkir gagnagrunnar
munu gerbreyta verklagsreglum Bruna-
málastofnunar hvað þessi verkefni varðar.
Kynning og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana
1 6 3