Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Page 26
1.2.2 Skýrslur deilda, faghópa og nefnda VFÍ
starfsárið 2002-2003
Menntamálanefnd
Menntamálanefnd VFÍ var á starfsárinu skipuð eftirtöldum mönnum: Steindór
Guðmundsson formaður, Gunnar Guðni Tómasson ritari, Sigurður M. Garðarsson, Pétur
K. Maack, Ragnhildur Geirsdóttir og Þórður Helgason. Sigurður M. Garðarsson er for-
maður ENSÍM-nefndar VFÍ, TFÍ og SV og situr hann jafnframt í menntamálanefndinni.
Sigurður situr í stjórn Endurmenntunarstofnunar HÍ sem fulltrúi VFÍ. Menntamálanefnd
hélt alls tíu fundi á starfsárinu og voru þeir fundir nr 226-235. Venjulegur fundartími er
annar fimmtudagur hvers mánaðar. Um hlutverk og verkefni menntamálanefndar er
fjallað í 19. grein félagslaga VFÍ.
Umsóknir til félagsins: Umsóknir um inngöngu í félagið og leyfi til að kalla sig verk-
fræðing voru sem hér segir á starfsárinu. Til samanburðar í töflu hér til hliðar eru
umsóknir síðustu ára: Af 53 umsóknum um inngöngu í félagið voru 47 umsóknir
samþykktar, fjórum var hafnað og umfjöllun um tvær er ekki lokið. Umsókn um ung-
félagaaðild var hafnað. Af 53 umsóknum um starfsheitið voru 46 umsóknir samþykktar,
fimm var hafnað og umfjöllun um tvær er ekki lokið. Þeir einstaklingar sem mælt var
með að fái leyfi til að kalla sig
verkfræðing og/eða fengu sam-
þykkta inngöngu í félagið voru
alls 76 talsins. Heildarfjöldi
umsókna síðustu þrjú starfsár
hefur verið mun meiri en fjögur
næstu árin þar á undan.
Umfjöllun um nýjar námsbrautir í verkfræði: Auk þess að fjalla um umsóknir um
inngöngu í félagið og leyfi til að nota starfsheitið verkfræðingur var m.a. fjallað um
skipulagningu náms við nýja skor í Verkfræðideild HÍ, þ.e. tölvunarfræði/hugbún-
aðarverkfræði. Einnig var fjallað um nýtt BS-nám í efnaverkfræði við véla- og iðnaðar-
verkfræðiskor.
Nefndin hefur fengið til umsagnar frá Verkfræðideild HÍ tillögur um tilhögun náms í
hugbúnaðarverkfræði.
Nefndin hélt fund með fulltrúa Verkfræðideildar um nýjustu tillögurnar, bæði um BS-
nám í hugbúnaðarverkfræði og um meistaranám í framhaldi af því. Einnig var haldinn
fundur með fulltrúum Verkfræðideildar um BS-nám í efnaverkfræði. Nefndin telur þessa
samvinnu VFI og Verkfræðideildar HÍ mjög mikilvæga.
Loks má nefna að nefndin hefur fylgst með framvindu á skipulagningu náms í „heilsu-
verkfræði" (Biomedical Engineering) við Háskóla íslands.
Fyrirhugað er að boðið verði upp á þetta nám á meistarastigi í fyrsta sinn haustið 2003,
Annars vegar verður tekið inn fólk með BS-próf í verkfræði, sem bætir við sig greinum
eins og lífeðlisfræði, lífefnafræði o.fl. Hins vegar verður tekið inn fólk úr læknisfræði og
bætir það við sig ýmsum tæknigreinum. Spurning er hvort unnt verði að viðurkenna
þessa hópa sem verkfræðinga ef þeir sækjast eftir því.
í ' ' ~
Fjöldi umsókna á starfsárinu 2002-2003
Starfsár 02-03 01-02 00-01 99-00 98-99 97-98 96-97 96-95
Innganga 53 45 65 34 18 21 24 49
Starfsheiti 53 52 60 41 36 29 24 49
Ungfélagaaðild 1 i 0 0 1 0 1 6
Umsóknir alls 107 98 125 75 55 50 49 104
V_______________________________________________________________________/
Arbók VFl/TFl 2002