Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Blaðsíða 73
Afkoma framangreindra fyrirtækja var almennt góð á árinu 2002
og samanlagður hagnaður fyrir skatta nam 54 milljörðum króna
samanborið við 13 milljarða sama tímabil árið 2001. Rekstrartekjur
jukust jafnframt þótt ekki hafi verið um jafnmikla hlutfallslega
aukningu að ræða. Fjármagnsliðir voru umtalsvert hagstæðari en
árið 2001 og hafði það mikil áhrif á bætta afkomu fyrirtækjanna.
Miklar sveiflur í gengi voru á árinu 2002 og lækkaði gengisvísi-
talan um 12% innan ársins samanborið við tæplega 18% hækkun
frá upphafi til loka ársins 2001. Þessar gengisbreytingar hafa auð-
vitað einhver áhrif á tekjur og gjöld fyrirtækjanna enda þótt gengi ís-
lensku krónunnar hafi aðeins styrkst um tæplega 3% að meðaltali
á árinu 2002. Styrking krónunnar innan ársins var hins vegar mun
meiri, eða um 1314%, sem skýrir breytingu fjármagnsliða úr 22
millarða króna gjaldfærslu árið 2001 í 11 milljarða tekjufærslu árið
2002. Þannig jókst hagnaður allra fyrirtækjanna fyrir tekju- og
eignaskatt úr 3% af rekstrartekjum árið 2001 í 11% árið 2002 og ef
fjármálafyrirtækin eru ekki meðtalin fór hann úr 1% í 9% af tekjum.
Niðurstöðutölur fyrir
fyrirtæki ÍKauphöll Islands
án fjármála- og trygg-
ingarfyrirtækja, m.kr.
Heimild:Kauphöll Islands.
Tekjur iðnaðar- og framleiðslufyrirtækja jukust umtalsvert á síðasta ári, að stórum hluta
vegna aukinnar útrásar til útlanda. Framlegð fyrirtækjanna (hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði sem hlutfall af tekjum) breyttist ekki, afskriftir jukust aftur á móti milli
áranna en þrátt fyrir það jókst hagnaður fyrir skatta um 3,7 milljarða króna, eða um 72%.
Miklar breytingar urðu í lyfjageiranum á síðasta ári, ekki síst með sameiningu stærstu
fyrirtækjanna. Einnig keyptu íslensku fyrirtækin útlend lyfjafyrirtæki og reistu nýjar
verksmiðjur í Evrópu. Samfara þessari útrás tvöfölduðust eignir lyfjafyrirtækjanna og
tekjur jukust um 15%. Þó má ætla að enn hafi ekki allur ávinningur af stækkun félaganna
komið fram.
Samanlagðar tekjur fyrirtækja sem mætti flokka undir upplýsingatækni jukust milli ár-
anna 2001 og 2002 en það eru örfá fyrirtæki sem halda uppi aukningu þeirra, tekjur hinna
lækkuðu. Framlegð þessara fyrirtækja jókst úr 17% í 19% milli áranna. Tekjur olíufélag-
anna drógust saman um 5% milli áranna og framlegð minnkaði um 1% af tekjum.
Hagnaður olíufélaganna fyrir skatta jókst aftur á móti og skýrist það fyrst og fremst af
gengishagnaði auk tekna af eignarhlutum í öðrum félögum. Tekjur fyrirtækja í verslunar-
geiranum jukust örlítið milli áranna, framlegð var óbreytt en hagnaður fyrir skatta var
jákvæður um 8% af tekjum samanborið við tap árið áður.
Mikil breyting varð á árinu 2002 á rekstri samgöngufélaganna tveggja, þ.e. Flugleiða og
Eimskipafélags íslands. Flugleiðum tókst að snúa rekstrinum við, úr 1,7 milljarða króna
tapi í 3,3 milljarða króna hagnað. Framlegð fyrirtækisins jókst um 11% af tekjum. Þrjú
sjávarútvegsfyrirtæki sameinuðust Eimskip á síðasta ári en sjávarútvegsstarfsemi
Eimskips var dregin út úr reikningum félagsins og er sá hluti talinn með sjávarútvegs-
geiranum í þessari samantekt.
Rekstrartekjur fjármála- og tryggingafyrirtækja jukust um tæplega 11 milljarða króna en
megnið af þeirri fjárhæð má rekja til bankanna. Flagnaður fyrir skatta jókst nokkuð og var
21% af rekstrartekjum samanborið við 15% árið 2001.
Rekstrartekjur sjávarútvegsfyrirtækja jukust óverulega milli ára. Hagnaður fyrir skatta
jókst aftur á móti um 14 milljarða króna sem bættir fjármagnsliðir skýra, í stað 11 millj-
arða gjaldfærslu árið 2001 var tæplega 7 milljarða króna tekjufærsla á síðasta ári.
Framlegð dróst saman, var 12% af tekjum árið 2001 en 10% á síðasta ári. Handbært fé frá
rekstri jókst um 4% af tekjum milli ára. Verulegur munur var á fjármagnsliðum útgerðar
og fiskvinnslufyrirtækja og sölusamtaka sjávarafurða. Þeir voru nær óbreyttir milli ára
hjá sölusamtökunum meðan viðsnúningurinn úr fjármagnsgjöldum í fjármagnstekjur var
um 18 milljarðar króna hjá útgerðar- og fiskvinnsíufyrirtækjunum.
6 9
Tækniannáll