Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Blaðsíða 318
Fleiri þjónustutegundir koma til greina á heimanetum. Kerfið getur fylgst með heilsufari
heimilismanna. Hægt er að koma fyrir nemum sem nema hjartslátt, blóðþrýsting og aðrar
stærðir sem lúta að heilsufari. Þessar upplýsingar má senda með Blátönn inn á
heimanetið eða jafnvel á farsíma viðkomandi og þannig væri hægt að fylgjast með heilsu-
fari hans hvar sem er. Þetta opnar meðal annars nýjar víddir í heimahjúkrun og getur
gert öldruðum kleift að búa lengur á eigin heimili. Hér hafa verið rakin nokkur dæmi um
þá þjónustu sem hægt er að veita með heimanetum. I næsta kafla verður farið yfir tækni
og staðla sem notaðir eru á heimanetum.
Heimagátt
Hjartað í heimanetum er heimagáttin (e. residential gateway). Ef litið er þannig á að tölva
með internettengingu myndi frumstætt heimanet má líta á mótaldið sem heimagátt.
Tengsl heimanetsins við umheiminn fara um heimagáttina. Heimagáttin hefur þróast frá
því að vera upphringimótald tengt við eina tölvu, upp í að vera ADSL mótald með
innbyggðum beini (e. router), með Ethernet skiptistöð sem hefur bæði þráðlausa teng-
ingu (802.11 a,b,g) og 100 Mb/s tengingu um þráð. Jafnframt er innbyggður eldveggur,
DHCP þjónusta (Dynamic Host Configuration Protocol), vefþjónn og kostur á tali yfir IP,
VoIP. Nýjustu gáttir hafa innbyggð hugbúnaðarkerfi þannig að þær verða þjónustugáttir
fyrir heimanet jafnframt því að vera fjarskiptagáttir. Þetta er skýrt nánar á mynd 2.
Á heimilum nútímans eru margar tegundir tækja sem er fjarstýrt á ýmsan hátt og stýran-
leikinn er algerlega óstaðlaður. Nettengdar tölvur eru einnig orðnar mjög útbreiddar.
Þjónustugáttin hefur það hlutverk að samtengja nemana og tækin á heimilinu og gera
þau stýranleg á einn samhæfðan hátt. Þar með kemur einnig fram sá kostur að tækin eru
fjarstýranleg þaðan sem fjarskiptasamband er til staðar, jafnvel fjarri heimilinu.
Þjónustugáttin er eins konar miðstöð heimanetsins. Þangað koma mælingar frá nemum
á heimilinu, t.d. ljós- og hitanemum, nemum sem skynja hvort dyr séu opnar eða lokaðar
o.s.frv. Þangað eru tengd hljómflutningstæki, stafræn myndbands- og sjónvarpstæki, net-
tengdar þvottavélar, ísskápar, vöktunarmyndavélar og myndarammar, svo fá dæmi séu
nefnd. Þjónustugáttin þarf að vera hönnuð skv. opnum stöðlum svo að sem flestir geti
notað hana til að bjóða þjónustu sína.
Með þessu móti geta notendur gætt
að og stjórnað ástandi heimilistækja
gegnum notendaviðmót sem aðgengi-
legt er þeim sem til þess hafa tilskilin
réttindi. Þar sem þetta viðmót má
nálgast á hvaða nettengda búnaði
sem er verður afar mikilvægt að
stjóma réttindum. Réttindi koma í
veg fyrir að óæskilegir aðilar nái
stjórn á og öðlist aðgang að heimilum
og persónulegum gögnum.
Samkvæmt rannsóknum Internet
Home Alliance [5] hafa tveir þættir
tafið fyrir áhuga almennings á inn-
leiðingu heimagátta: flækjustig tækni-
búnaðar og vantrú á öryggi og
réttindastjórnun. Með nýtilkomnum
stöðlum í þráðlausum netum hefur
notendum verið gert kleift að setja
upp heimanet án mikillar tækni-
kunnáttu eða fyrirhafnar. Það næsta
HEIMAGÁTT
Viðmót
Þjónustulag Þjónustugátt
Netlag Fjarskiptagátt
Mynd 2. Á heimagáttinni er fjarskiptagátt og þjónustugátt. Forrit sem veita margs konar þjónustu geta keyrt á heimagáttinni.
3 1 4
Arbók VFl/TFl 2003