Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Blaðsíða 149
yfirbragð er látið halda sér í meginatriðum. Garðyrkjudeild sér einnig um rekstur skóla-
garða og leigu garðlanda til matjurtaræktunar auk þess að reka Grasagarð Reykjavíkur.
Sorphirða og dýraeftirlit
Deildin annast sorphirðu í borginni, aðallega frá heimilum og atvinnufyrirtækjum, og
hefur umsjón með þjónustusamningum við Sorpu bs. um rekstur endurvinnslustöðva.
Deildin sér einnig um hundaeftirlit, búfjáreftirlit, meindýraeyðingu og önnur tengd mál.
Hollustuhættir
Deildin annast eftirlit með hollustuháttum og öryggismálum í fyrirtækjum sem veita
almenningi þjónustu, svo sem sundlaugum, íþróttahúsum, skólum, leikskólum og barna-
gæslu, gisti- og skemmtistöðum, snyrtistofum, félags- og heilbrigðisstofnunum. Deildin
hefur með höndum útgáfu starfsleyfa í þeim fyrirtækjaflokkum sem heyra undir hana og
einnig heyrir eftirlit með íbúðarhúsnæði, hávaða innanhúss, efnavörum og öðrum hættu-
legum efnum undir deildina. Fræðsla fyrir starfsfólk fyrirtækja og almenning um holl-
ustuhætti og öryggismál er einnig hluti af starfsemi deildarinnar.
Mengunarvarnir
Mengunarvarnir annast eftirlit með mengandi starfsemi í borginni og sjá um vöktun loft-
gæða, áa, lækja og stöðuvatna og jarðvegs. Meginverkefni deildarinnar er eftirlit með
losun og förgun mengandi efna og spilliefna. Stór þáttur af eftirlitinu er einnig að sinna
kvörtunum og ábendingum um mengun. Deildin annast útgáfu starfsleyfa fyrir meng-
andi fyrirtæki auk eftirlits með hávaða utanhúss og hávaða frá tækjabúnaði.
Matvælaeftirlit
Matvælaeftirlit annast eftirlit með öryggi og heilnæmi matvæla í fyrirtækjum sem fram-
leiða eða dreifa matvælum, svo sem matvælaverksmiðjum, verslunum, veitingahúsum
og mötuneytum. Deildin annast eftirlit með öflun og dreifingu neysluvatns og sýnatöku
á neysluvatni. Rannsóknir matarsýkinga eru einnig í höndum deildarinnar. Deildin hefur
eftirlit með merkingum, kynningum og auglýsingum matvæla og að matvæli uppfylli að
öðru leyti þær kröfur sem til þeirra eru gerðar. Deildin hefur og með höndum útgáfu
starfsleyfa til fyrirtækja sem framleiða og dreifa matvælum og gefur umsagnir til
lögreglustjóra vegna útgáfu veitingaleyfa og til borgarráðs vegna útgáfu áfengisveitinga-
leyfa.
Staðardagskrá 21 - Umhverfisáætlun Reykjavíkur
Umhverfisáætlun Reykjavíkur, sem var samþykkt í borgarráði hinn 6. febrúar 2001, er
Staðardagskrá fyrir borgina í anda Ríó-sáttmálans um umhverfi og þróun. Það er
hlutverk deildarinnar að vinna náið með öllum deildum stofunnar með það að markmiði
að umhverfisáætlun borgarinnar verði hrint í framkvæmd á öllum sviðum og með sam-
ræmdum hætti.
Vinnuskóli Reykjavikur
Vinnuskóli Reykjavíkur hefur sjálfstæða stjórn en heyrir undir svið Umhverfis- og heil-
brigðisstofu. Hann hefur með höndum sumarstarf fyrir unglinga sem stundað hafa nám
í 8.-10. bekk grunnskóla nýliðið ár. Unglingar starfa við fegrun og hreinsun borgarinnar
á lóðurn skóla og borgarstofnana og á opnum svæðurn, í samvimru við garðyrkjudeild
Umhverfis- og heilbrigðisstofu og Gatnamálastofu. Á veturna hefur Vinnuskólinn, í
samvinnu við Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, boðið grunnskólunum í borginni samstarf
með starfstengt nám fyrir nemendur í 9. og 10. bekk sem sérstaklega þurfa á því að halda.
Kynning og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana i 1 45