Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Blaðsíða 130
Minnisvarði af útrásarröri frá dælu- og hreinsistöð í Klettagörðum.
(Ljósm. Guðmundur Ævar Guðmundsson)
til skólphreinsunar og dælingar
frárennslis frá sveitarfélögum og
stærri fyrirtækjum. Einnig hafa
verið boðnar heildarlausnir, svo
sem var raunin við Ananaust,
Klettagarða og í Reykjanesbæ.
Helstu samstarfsaðilar hafa verið
ABS, Schneider Electric, Huber,
Hydropress o.fl.
Legusala og þjónusta er stór þáttur
í starfsemi deildarinnar en helstu
birgjar eru FAG, ÍNA, Timken, SNR
og Nachi þar sem bjóðast m.a.
kúlulegur, keflalegur, nálalegur,
línulegur ofl. Einnig má nefna
Sterling dælu- og ásþétti, Renold
keðjur og tannhjól, Optibelt reimar,
reimskífur, titrningsdempara,
Tellure Rotha vagnhjól, ABS brunn-
dælur, ProMinent skömmtunar-
dælur ofl.
Fálkinn er þekktur fyrir endingargóða varahluti í bifreiðar svo sem Sachs höggdeyfa og
kúplingar, Raicam hemlaíhluti, HK gírkassa- og hjólalegusett, GLO kúlu- og hjöruliðir að
ógleymdum Pyrmo bón og hreinsiefnum.
Þjónusta við sjávarútveginn
Fálkinn hefur ætíð tekið þátt í íslensku sjávarútvegssýningunni og hefur þannig haldið
góðum tengslum við sinn stóra og trygga viðskiptavinahóp á sviði fiskveiða og fisk-
vinnslu. Þjónusta við sjávarútveginn er stór þáttur í starfseminni og er nánast sama hvar
borið er niður, víðast hvar á Fálkinn einhverjar vörur sem nýtast við framleiðslu og
viðhald fiskvinnsluvéla, fiskveiðiskipa eða fiskvinnsluhúsa. Fiskimjölsiðnaðurinn er
mikilvægur þáttur í starfseminni þar sem helstu samstarfsaðilar eru Atlas-Stord, ABS,
Babbini, Spirax Sarco, Schneider Electric o.fl. Fálkinn útvegar t.d. eimingartæki, þurrkara,
síur, dælur, sjóðara, pressur, vogir, gufustjórnbúnað ásamt öllum nauðsynlegum raf-
stýribúnaði svo sem iðntölvur, rofabúnað, skynjara og skjámyndakerfi.
Kjörorð Fálkans, þekking - reynsla - þjónusta, eru ætíð höfð að leiðarljósi við val á birgjum
og búnaði sem boðinn er til sölu. Mikil áhersla er lögð á að þjóna viðskiptavinum í
hvívetna og ráðleggja þeim varðandi flest það sem snertir notkun vörunnar og þannig er
tryggt að varan uppfylli sem best væntingar þeirra. Segja má að söluferli sé seint eða
aldrei lokið því viðskiptavinur getur alltaf leitað til Fálkans með hvers kyns spurningar
og vandamál sem upp kunna að koma og er þeim þá beint á rétta braut ef nokkur kostur
er.
i 2 e
Arbók VFl/TFl 2003