Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Blaðsíða 232
Jarðskjálftastaðlar
Notmarkaástand og brotmarkaástand
Við framsetningu á álagsforsendum er tekið mið af samþykktum jarðskjálftastaðli,
Eurocode 8 [1] frá árinu 1994 og tilheyrandi þjóðarskjali [3]. Einnig er tekið mið af
ósamþykktum nýjum drögum af Eurocode 8 frá árinu 2002 [4]. Töluverðar breytingar
hafa átt sér stað í 2002 drögunum miðað við 1994 útgáfuna. Líklegt er þó að nokkur ár
muni líða áður en nýr staðall tekur við 1994 útgáfunni.
I Eurocode 8 frá 1994 [1] og nýju drögunum [4] er gerður greinarmunur á tveimur hörrn-
unarstigum við mannvirkjahönnun. Annars vegar brotmarkaástandi (ultimate limit
state/no-collapse requirement) og hins vegar notmarkaástandi (serviceability limit state/dam-
age limitation requirement). 1 1994 staðlinum er kveðið á um að það sé verkefni þjóðaryfir-
valda að skilgreina hvaða öryggismörk skuli styðjast við þegar jarðskjálftaáraun er
ákveðið. Þetta hefur verið gert í hinu nýja íslenska þjóðarskjali, [3]. Þar er miðað við
jarðskjálftaáraun með 475 ára meðalendurkomutíma fyrir brotmarkaástand. Þetta er jafn-
framt í samræmi við 2002 drögin. Meðalendurkomutíminn 475 ár jafngildir því að 10%
líkindi séu á því að jarðskjálftaáraunin verði meiri á 50 ára tímabili. I 2002 drögunum
kemur fram að fyrir notmarkaástand skuli miða við 10% líkindi á 10 ára tímabili. Þetta
jafngildir um 95 ára meðalendurkomutíma. Ofangreind líkindi og meðalendurkomu-
tímar miðast við mikilvægisflokk III.
Meðalendurkomutími og líkindi
Hér að framan eru ýmist gefin líkindi fyrir tiltekið viðmiðunartímabil eða þá jafngildur
meðalendurkomutími. Táknum atburð (gildi) sem hefur meðalendurkomutímann TE,
sem xE, þar sem TE er mælt í árum. Líkindin fyrir því að fá atburð X sem er stærri en xE
á hönnunartíma eða líftíma byggingar, TL, má ákvarða sem:
\T,
P,{x >xe\I=Tl}=\-
1
Þessa jöfnu má endurrita fyrir meðalendurkomutímann TE, þ.e.:
1
1 - exp
ln(l-Pr)
Þannig fæst, t.d. með Pr=0,10 og TE=50 ár, meðalendurkomutíminn TE=475 ár.
(1)
(2)
Mikilvægisstuðlar
I Evrópustaðlinum frá 1994 [1] og nýju drögunum [4] er stillt upp fjórum mikilvægis-
flokkum. Hver flokkur hefur sinn mikilvægisstuðul, //, sem nota skal til að kvarða grunn-
gildi jarðskjálftaáraunarinnar. Mikilvægisflokkarnir og leiðbeinandi stuðlar eru sýndir í
töflu 1.
Tafla 1. Mikilvægisflokkar og mikilvægisstuðlar samkvæmt Eurocode 8, [1 ] og [4].
Flokkur Mannvirki Mikilvægisstuðull
1 Mannvirki sem mikilvægt er að séu starfhæf í kjölfar jarðskjálfta, t.d. spítalar, slökkvistöðvar, orkuver o.fl. 1,4
ii Mannvirki þar sem afleiðingar þess að bygging hrynur eru miklar, t.d. skólar, samkomusalir, menningarstofnanir o.fl. 1,2
iii Venjulegar byggingar sem falla ekki undir aðra flokka. 1,0
IV Byggingar sem eru þýðingarlitlar, t.d. landbúnaðarmannvirki o.fl. 0,8
2 2 8
Árbók VFÍ/TFÍ 2003