Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Blaðsíða 199
Þessar athuganir á lausnum, sem fólu í sér breyt-
ingar á CANTAT-3, leiddu í ljós að þær voru ekki
álitlegar til frambúðar. Ekki reyndist heldur áhugi
meðal eigenda nýrri strengkerfa, sem á döfinni voru
yfir Atlantshafið, að bjóða tengingu til íslands.
Ákveðið var að skoða áfram strengtengingu til
Færeyja, en nú með það fyrir augum að halda áfram
þaðan til Bretlandseyja. Kostnaður sæstrengs fer að
mestu leyti eftir lengd hans og því mikilsvert að
velja stystu raunhæfu leið. Framfarir í ljósleiðara-
tækni hafa verið stórstígar og var jafnvel talið
hugsanlegt að komast mætti með sæstreng til
Færeyja án þess að hafa magnara á leiðinni, en það
hefði dregið töluvert úr kostnaði. Þetta reyndist þó
ekki raunhæft við frekari skoðun.
Fyrstu hugmyndir gerðu ráð fyrir að strengurinn
yrði lagður í tveimur áföngum, fyrst milli íslands og
Færeyja og síðan frá Færeyjum til Bretlands. Fyrri
hlutinn mundi gefa aukið öryggi á tengingunni við
CANTAT-3, en hinn síðari algerlega óháða leið út úr
landinu. í ársbyrjun 2000 stofnaði Síminn til form-
legs samstarfs við ForoyaTele p/f og var TDC
Consult fengið til ráðgjafar. TDC Consult er eining
innan danska símafyrirtækisins TDC, en þar á bæ
hafa menn mikla reynslu af sæstrengsverkefnum.
Undirbúningur
Hafist var handa við athugun á heppilegri strengleið
milli Islands og Færeyja. Stysta leiðin er frá suð-
austurhorni landsins, þeina leið til Færeyja. Þessi
leið er þó ekki heppileg. Hún liggur um Islands-
Færeyjahrygginn, þar sem dýpi er tiltölulega lítið.
Þetta eykur líkur á skemmdum vegna botnveiða,
sem er helsta orsök bilana á sæstrengjum. Á þessu
svæði eru fjölsótt fiskimið, sem kölluð eru
Rósagarðurinn. Fiskisókn er hér einnig mikil uppi
við suðausturströnd íslands, sem gerir landtöku
strengs erfiða.
Eftir frekari kannanir og viðræður við sjómenn og
aðra, sem kunnugir eru, var komist að þeirri
niðurstöðu að öruggasta leiðin fyrir sæstreng væri
út frá Seyðisfirði. Bæði er þar ákveðin eyða í
fiskisókn og tiltölulega stutt út á mikið dýpi. Þetta er
sama leið og ritsímastrengurinn var lagður árið
1906. Heppilegasta leiðin inn til Færeyja er úr norðri
um svæði, sem er friðað fyrir botnveiðum, með
lendingu í Funningsfirði.
I samræmi við þessar niðurstöður voru botn-
rannsóknir á þessari leið boðnar út vorið 2000.
Samið var við þýska fyrirtækið OSAE (Offshore
FARICE PoP
Tónhavn
Backhdul
Baikhdul
lceland Cable
Stdtion
FAKICk POP
Rcykjavlk
iryðnfjordur
BU BranchingUmt
FP Fibre Pair
PoP Point of Pre»ence
k Cable
tion
Scotland Cable
Station
HfjCrdur
DunnetBay
FARICE PoP
Edinburgh
Kerfismynd FARICE-1J
Skipið Kommandor Jack sem upphaflega var
notað til botnrannsókna milli Færeyja og
íslands í ágúst og september 2000.
Símstöðin á Seyðisfirði þar sem búnaður
FARICE er staðsettur.
Kynning og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana i 1 9 5