Læknablaðið - 15.01.1995, Blaðsíða 41
ENAPRÍL
(enalaprfl maleat)
-áhrifaríkt lyf við háþrýstingi
Enapríl (enalapril maleat)
Framleiðandi: OMEGA FARMA hf., Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur. Töflur; C 02 E A 02. Hver
tafla inniheldur Enalaprilum INN, maleat, 5 mg, 10 mg eða 20 mg. Eiginleikar Lyfið hamlar hvata, er
breytir angiotensin I i angiotensin II, sem er kröftugasta æðasamdráttarefni hkamans. Lyfiö er fortyf.
U.þ.b. 60% frásogast, umbrýst i lifur i enalapnlat, sem er hiö virka efni. Áhrif lyfsins ná hámarki eftir 4-6
klst. og geta haldist i 24 klst. Helmingunartimi er um 11 klst., en er mun lengri, ef nýrnastarfsemi er
skert. Lyfiö útskilst i þvagi. Ábendingar Hár blóöþrýstingur. Hjartabilun. Frábendingar Ofnæmi fyrir
lyfinu. Meöganga og brjóstagjöf. Lyfið má alls ekki nota á meðgöngu. Lyf af þessum flokki (ACE-
hemjarar) geta valdiö fósturskemmdum á öllum fósturstigum. Varúð: Gæta skal varúöar viö gjöf lyfsins
hjá sjúklingum meö skerta nýma- og lifrarstarfsemi. Lyfiö getur valdið of mikilli blóöþrýstingslækkun, ef
sjúklingar hafa misst salt og vökva vegna meöferöar meö þvagræsilyfjum. Aukaverkanir Algengar:
Ofnæmi, hósti, svimi, höfuðverkur. Sjaldgæfari: Þreyta, slen, lágur blóöþrýstingur og yfiriiö. Ógleói,
niöurgangur. Húðútþot, ofnæmisbjúgur. Vöðvakrampar. Brengluð nýmastarfsemi. Kreatinin, urea,
lifrarenzým og bilirúbin geta hækkað, en komast i fyrra horf, ef lyfjagjöf er hætt. Milliverkanir
Blóöþrýstingslækkandi verkun lyfsins eykst, ef hýdróklórtiazið er gefiö samtimis. Blóðkalium getur
hækkaö, ef lyfiö er gefið samtimis lyfjum, sem draga úr kaliumútskilnaöi. Ofsömmtun: Gefa
saltvatnslausn eða angiotensin II. Skammtastærðir handa fullorðnum: Við hækkaðan blóðþrýsting:
Venjulegur upphafsskammtur er 10-20 mg einu sinni á dag. Ekki er mælt meö hærri dagsskammti en 40
mg. Við hjartabilun: Upphafsskammtur er 2,5 mg á dag, sem auka má viö smám saman á 2-4 vikum.
Venjulegur viðhaldsskammtur er 20 mg á dag, gefinn i einum eöa tveimur skömmtum. Lyfið er ekki
ætlað bömum.
Pakkningar.
Töflur 5 mg: 30 stk.; 100 stk.
Töflur 10 mg: 30 stk.; 100 stk.
Töflur 20 mg: 30 stk.; 100 stk
o
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990