Læknablaðið - 15.01.1995, Blaðsíða 88
74
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
þessu verði eru margvíslegar
rannsóknir og aðgerðir. Af
þessari upphæð þarf að greiða
laun aðstoðarfólks, húsnæði,
tæki og tryggingar svo eitthvað
sé nefnt. Af gjaldinu greiðir
sjúklingurinn um 1900 krónur.
Tilvísanakerfi er vel þekkt í
sumum löndum Evrópu, en þar
er sérfræðingsþjónustan líka
miklu dýrari en á Islandi. Mér
hefur fundist eðlilegt að sjúk-
lingur með ný vandamál leiti
fyrst til síns heimilislæknis, sem
metur það síðan hvort ástæða sé
til þess að leita ráða annars sér-
fræðings. Meginrökin gegn stífu
tilvísanakerfi á íslandi eru hins
vegar hin ódýra sérfræðings-
þjónusta. Sem sagt, það er erfitt
að leysa úr vanda íslenskra sjúk-
linga með ódýrari hætti en nú er
gert. Hins vegar er vel hugsan-
legt að tilvísanakerfi hæstvirts
heilbrigðis- og viðskiptamála-
ráðherra gæti sparað Banda-
ríkjamönnum einhverja pen-
inga ef því yrði skellt á þá, enda
er sérfræðingsþjónustan þar
dýr. Verði tilvísanakerfi tekið
upp á íslandi er líklegt að sér-
fræðingar krefjist hækkunar á
taxta enda má búast við því að
þeir sinntu þá einungis tíma-
frekum og vandasömum tilfell-
um.
Eina kostnaðaraukningin í
sérfræðingsþjónustunni síðasta
ár hefur orðið vegna röntgen-
rannsókna, aðallega vegna til-
komu nýrrar rannsóknastofu,
sem hefur boðið læknum og
sjúklingum upp á fljóta og góða
afgreiðslu. Á móti þessum
kostnaðarauka hefur komið til
minni kostnaður við rannsóknir
á Landakoti. Ekki þarf að segja
læknum að röntgenrannsóknir
eru einungis gerðar eftir tilvísun
frá lækni, en það er ekki öllum
embættismönnum og stjórn-
málamönnum ljóst.
Einu verk í gjaldskrá sérfræð-
inga, sem eru framkvæmd á
ódýrari máta í nálægum lönd-
um, til dæmis í Svíþjóð, eru
nokkrar efnafræðirannsóknir.
Vegna tækniframfara við mæl-
ingar hefur verið unnt að gera
rannsóknirnar á ódýrari hátt en
áður. Samninganefnd sérfræð-
inga hefur lækkað verð á þess-
um rannsóknum í nokkrum síð-
ustu samningum við TR. Þegar
samningaumleitanir hófust
haustið 1993, eftir að TR sagði
upp samningum við sérfræð-
inga, bauð samninganefnd sér-
fræðinga fljótlega um 10%
lækkun á flestum blóðrann-
sóknum. Þetta fannst sumum
viðsemjendum ágætt tilboð en
svo virðist sem kerfisbreyting-
armenn næðu aftur yfirhönd-
inni þannig að nú er farið að tala
um útboð. Hvernig ríkisvaldið
ætlar að láta rannsóknarstofur
spítalanna bjóða í slíkar rann-
sóknir án þess að brjóta sam-
keppnislög er flestum hulin ráð-
gáta. Ljóst er að aðskilja verður
algjörlega rannsóknarþjónust-
una við inniliggjandi sjúklinga
frá þjónustu við utanspítala-
sjúklinga. Nauðsynlegt kann þá
að vera að fjárfesta í nýjum
tækjum og húsnæði. Mun það
spara skattgreiðendum fé?
LR minnir á árshátíðina, sem
verður laugardaginn 21. janúar,
að Hótel Sögu. Læknar hvar
sem þeir búa á Iandinu, eru
hvattir til að mæta.
Með ósk um farsæld á nýju
ári.