Læknablaðið - 15.01.1995, Blaðsíða 116
100
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
meðferð mála gilda reglur, sem
eru í viðauka við lög þessi.
22. grein
Brottvísun úr félaginu
Stjórn LÍ getur, að höfðu
samráði við stjórn viðkomandi
aðildarfélags, sé um það að
ræða, vísað félagsmanni úr fé-
laginu fyrir alvarlega vanrækslu
skyldustarfa, velsæmisbrot eða
fyrir ítrekuð brot, þótt hvert
þeirra um sig varði aðeins sekt-
um. Ennfremur ef hann neitar
að greiða sektir. Sama gildir, ef
félagsmaður sækir um eða tekur
við embætti, stöðu eða starfi
þrátt fyrir aðvörun stjórnarinn-
ar.
Úrskurð stjórnanna um
brottvísun skal taka fyrir á
næsta aðalfundi LÍ til staðfest-
ingar eða synjunar.
IX. kafli:
Ýmis ákvæði
23. grein
Upplýsingar til kandídata
Stjórn LI skal sjá um, að
kandídatar í læknisfræði frá Há-
skóla Islands, svo og íslenskir
eða erlendir ríkisborgarar, sem
tekið hafa kandídatspróf er-
lendis, en fá læknaréttindi á ís-
landi, fái lög og siðareglur LÍ,
svo að þeim sé ljós tilvera fé-
lagsins, tilgangur þess og reglur,
og réttindi þeirra og skyldur í
því sambandi.
24. grein
Útgáfustarfsemi
Læknafélag íslands og
Læknafélag Reykjavíkur eiga
og gefa sameiginlega út Lækna-
blaðið. Aðalstjórnir félaganna
ráða ritstjóra að blaðinu, einn
eða fleiri, til tveggja ára í senn.
Stjórnirnar skipa ábyrgðar-
mann blaðsins úr hópi ritstjóra.
Stjórnirnar setja að öðru leyti
reglur um rekstur blaðsins og
ákveða þóknun til ritstjóra og
annarra starfsmanna blaðsins.
Útgáfustjórn skipa formenn
félaganna og ábyrgðarmaður
blaðsins.
25. grein
Siðfræðiráð LÍ
Siðfræðiráð Læknafélags ís-
lands er ráðgefandi fyrir stjórn
LÍ og svæðafélög þess og sér-
greinafélög.
Um skipun, verkefni og
starfshætti ráðsins gilda reglur,
sem eru í viðauka við lög þessi.
26. grein
Læknaþing
Almennt læknaþing skal
haldið eigi sjaldnar en annað
hvert ár í sambandi við aðal-
fund.
A þingum þessum skal flytja
erindi um læknisfræðileg efni.
Til fyrirlestrahalds skulu fengn-
ir vísindamenn og læknar, inn-
lendir og erlendir.
27. grein
Breytingar á lögum, reglum
og á Codex Ethicus
Lögum þessum og Codex Et-
hicus verður aðeins breytt á að-
alfundi LÍ og greiði að minnsta
kosti tveir þriðju hlutar fulltrúa
atkvæði með breytingum.
Tillögur til breytinga á þeim
skulu sendar fulltrúum að
minnsta kosti tveim vikum fyrir
aðalfund.
Ofangreint gildir einnig um
breytingar á þeim reglum um
meðferð á ágreiningi lækna og
læknafélaga, meintum brotum á
Codex Ethicus, lögum og sam-
þykktum LÍ, svo og um reglur
um skipun, verkefni og starfs-
hætti Siðanefndar, Gerðardóms
og Siðfræðiráðs, sem eru í við-
auka með lögum þessum.
Innan félagsins skal starfa 3ja
manna laganefnd, skipuð af
stjórn, til stöðugrar endurskoð-
unar á lögum félagsins.