Læknablaðið - 15.01.1995, Blaðsíða 108
92
LÆKNABLAÐIÐ 1995: 81
Sverrir Bergmann formaður LÍ
Ný lög Læknafélags íslands
Fylgt úr hlaði
í þessu blaði birtast ný lög LÍ
en þau voru samþykkt á auka-
aðalfundi LÍ 25. nóvember s.l.
Fundurinn var haldinn, sá
fyrsti, í nýjum fundarsölum
læknasamtakanna að Hlíða-
smára 8 í Kópavogi.
Nefnd til þess að endurskoða
skipulag læknasamtakanna og
gera um það tillögur til breyt-
inga ef hún teldi ástæðu til, var
stofnuð eftir samþykkt ályktun-
artillögu stjórnar LI þar um á
aðalfundi í Reykjavík 1993.
Nefnd þessi starfaði undir for-
sæti Magnúsar R. Jónassonar
en aðrir í nefndinni voru Guð-
mundur Olgeirsson, Halldór
Halldórsson, Halldór Jóhanns-
son og Magni Jónsson. Anna
Stefánsdóttir unglæknir var rit-
ari nefndarinnar. Nefndin skil-
aði áliti á vordögum 1994. Eftir
umræður í stjórn LÍ og nefndar-
starf þriggja stjórnarmanna auk
framkvæmdastjóra félaganna
lagði stjórn LÍ fram ályktunar-
tillögu um breytingar á lögum
LÍ á aðalfundi 1994. Aðalfund-
urinn samþykkti að mestu til-
lögu stjórnar LÍ og veitti henni
umboð til þess að ganga frá end-
anlegri tillögum að lögum LÍ
samkvæmt ályktunartillögunni.
Lagabreytingum samkvæmt til-
lögum stjórnar LR var vísað til
stjórnar LI en afgreiðslu þeirra
frestað á aðalfundi 1994 og
ákveðið að halda aukaaðalfund
í nóvember. Eftir áframhald-
andi umræður í stjórn LI var sett
á laggirnar undirnefnd sömu
stjórnarmanna LÍ og áður þ.e.
formanns, varaformanns og
meðstjórnanda Guðmundar
Björnssonar en auk þess var
Gestur Porgeirsson skipaður í
nefndina. Framkvæmdastjóri
félaganna var nefndinni áfram
til liðveislu.
Tillögur stjórnar LI hlutu
samþykki með smávægilegum
breytingum sem starfsnefnd á
aukaaðalfundinum gekk frá eft-
ir ábendingum fulltrúa. Hún
framkvæmdi einnig augljósar
samræmingar og leiðréttingar í
texta. Látið var reyna á allar
breytingatillögur og komu þær
til atkvæða.
Meginatriði hinna nýju laga eru
þessi:
1. LÍ er áfram samtök svæðafé-
laga lækna og félaga ís-
lenskralækna erlendis. Önn-
ur félög lækna eru ekki bein-
ir aðilar að LÍ. Petta er
óbreytt frá því sem verið hef-
ur en einstaklingsaðild að LI
er nú heimil. Með þessu
fyrirkomulagi eru skapaðar
forsendur fyrir því að enginn
læknir þurfi að standa utan
heildarsamtaka lækna og að
læknar geti þar með allir
verið í einum heildarsamtök-
um. Þetta er í samræmi við
álit allra í skipulags- og end-
urskoðunarnefndinni.
2. Viðurkennd er nauðsyn
svæðafélaganna. Pví er
kosningaréttur og kjörgengi
hvers læknis til aðalfundar
LÍ í svæðafélagi hans en
hann getur hins vegar flutt
atkvæði sitt til félags lækna
sem starfar á landsvísu við
kjör fulltrúa á aðalfund LÍ.
Hann heldur áfram kjör-
gengi í svæðafélagi sínu.
Læknar sem kjósa að eiga
einstaklingsaðild að LI hafa
ekki kosningarétt eða kjör-
gengi til aðalfundar LI en
þeir hafa allan annan rétt
meðal annars til setu í ráðum
og í nefndum á vegum LÍ til
jafns við aðra lækna.
3. Aðalfundur LÍ verður opinn
öllum læknum með málfrelsi
og tillögurétti.
4. Fimmtíu læknar geta óskað
eftir aukaaðalfundi um sér-
stök mál.
5. Eitt hundrað læknar geta
óskað eftir allsherjarat-
kvæðagreiðslu um ákveðin
málefni.
6. Afnumið er úr eldri lögum
að ekkert eitt svæðafélag
megi eiga meira en helming
fulltrúa á aðalfundi. Nú
verður einn fulltrúi fyrir
hverja 20 lækna nema hvað
rétt þótti að núverandi
svæðafélög ættu öll einn full-
trúa enda þótt meðlimir
svæðafélagsins væru færri en
20. Fyrir félög íslenskra
lækna erlendis er miðað við
10 lækna í félagi. Pá getur
aðeins verið eitt félag í
hverju landi.
7. LI fær samningsumboð fyrir
alla lækna en enginn læknir
greiðir þó atkvæði um samn-
inga nema hann vinni eftir
þeim. Þótt þetta standi í nýj-
um lögum verður að leita
samþykkis þeirra sem nú
hafa samningsumboð um
flutning þess en LI mun ann-
ast samningsgerð í samráði
við þá sem samningarnir
varða.
Hægt er gagnrýna þessa laga-
setningu rétt eins og önnur
mannanna verk. Eg ætla hins
vegar að læknar líti á þessi lög
sem tímamót og skoði þau í ljósi
sanngirni og félagsþroska. Ein-
staklingsaðild að LÍ var ekki
hafnað á þeirri forsendu að í