Læknablaðið - 15.01.1995, Blaðsíða 90
76
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Er heilbrigð sál í hraustum
líkama öfugmæli?
í læknatímaritum fjölgar
greinum um alvarlega fylgi-
kvilla gjörþálfunar (intensive-
training), það er daglegrar
þjálfunar íþrótta- og listamanna
í margar klukkustundir. Þessara
truflana varð fyrst vart eftir 1970
en nú fjölgar mjög skýrslum um
þetta efni og verður þeim gerð
nokkur skil hér.
Fylgikvillar gjörþjálfunar
kvenna
Meðal kvenna er stunda til
dæmis maraþon, leikfimi, hjól-
reiðar og ballet er tíða-
teppa algeng (sjá mynd).
Rúmlega 40% úrvals-
hlaupara og 60% leik-
fimiiðkenda þjást af tíða-
teppu. Ef þessi truflun
verður langvinn er veru-
leg hætta á beineyðingu
(osteoporosis). Ekki er
talið að sex mánaða tíða-
teppa valdi alvarlegum
truflunum en tveggja til
þriggja ára tíðateppa
getur orðið varanleg og
eykst þá verulega hætta á bein-
eyðingu. Hætta eykst á bein-
brotum enda hefur beinbrotum
ungra íþróttamanna fjölgað
verulega á síðustu árum. Or-
sakasamband er rakið til þess að
truflun verður á undirstúku
(hypothalamus-) heiladinguls
og eggjajafnvæginu sem dregur
úr framleiðslu gulbúsvaka
(progesterone) og estrógen hor-
móna. Þessi truflun ásamt
megrunarmataræði veldur
minnkun á líkamsfitu og er það
talinn aðalorsakavaldur fram-
angreindra truflana.
Áhrif á unglinga
Gjörþjálfun barna- og ung-
linga er talin seinka kynþroska.
Nokkuð algengt er að ballet-
dansmeyjar og leikfimiiðkend-
ur hafi ekki á klæðum fyrr en
um tvítugt! Þessu fylgir truflun á
beinvaxtarlínum (epiphysis)
svo að fólk verður lágvaxnara
en ella. Vitað er um beinbrot
meðal ungra ballettdansmeyja á
íslandi.
Karlar
Grunur leikur á að svipuð
truflun á hormónaframleiðslu,
það er minnkun á framleiðslu
kynhormóna (testosterone) og
sæði, fylgi í kjölfar gjörþjálfunar
karla.
Steraneysla
Ekki þarf að rita langt mál um
fylgikvilla of mikillar stera-
neyslu en benda má á: Hor-
mónatruflun, vaxtarbreytingu,
árásagirni og aðrar alvarlegar
geðtruflanir.
Alþekkt er nú og viðurkennt
jafnvel í dómsmálum að tilefnis-
lausar líkamsárásir má rekja til
mikillar steraneyslu viðkom-
andi.
Lokaorð
Athygli vísindamanna hefur í
vaxandi mæli beinst að framan-
greindum fylgikvillum. Heil-
brigðisyfirvöld, forystumenn
íþrótta, læknar og þjálfarar hafa
ekki verið vakandi í þessum
málum. Margir rekja þessar al-
varlegu truflanir á heilbrigði
meðal keppnisíþróttafólks til
yfirþyrmandi áróðurs um stöð-
ugt betri árangur í keppnis-
íþróttum og atvinnumennsku
sem fylgt hefur í kjölfarið. Að
baki þessum áróðri má þekkja
áhrif auglýsinga og gróðahyggju
sem ráða ferðinni. Nauðsynlegt
er að keppnisíþróttafólk og
listafólk gangist reglulega undir
umfangsmeira heilbrigð-
iseftirlit en nú er fram-
kvæmt. Læknar verða að
halda vöku sinni í þessu
efni og gera athugasemd-
ir ef í óefni stefnir. Bæta
þarf til muna menntun
þjálfara en eins og nú er
nægir ekki eingöngu fyrri
færni í íþróttum til þess
að menn annist þjálfun
framúrskarandi íþrótta-
fólks. Hafa ber í huga að
þeir sem ætla að komast í
úrvalshóp íþróttamanna þurfa
að þjálfa í fjóra til fimm klukku-
tíma á dag alla daga ársins, en
áhrif slíkrar þjálfunar hafa ekki
verið rannsökuð til hlítar. For-
ystumenn í íþróttafélögum
verða að taka á þessum málum
líkt og tekið hefur verið á stera-
málum. Að öðrum kosti verður
„heilbrigð sál í hraustum lík-
ama“ öfugmæli.
Ólafur Ólafsson landlæknir
Heimildir
Walman R. Osteoporosis and Exercise. Br
Med J 1994; 309: 400-3.
McLatelie. From British Olympic
Medical Center. Sports Medicine 1994; 2:
100-15.
Ii»-aI Óreglulegar blæðingar
H Tfðateppa
n tlðablæðingar hafa