Læknablaðið - 15.01.1995, Blaðsíða 48
NÝ RANNSÓKN, SEM MUN VALDA STRAUMHVÖRFUM
ZOCOR® (TÖFLUR, MSD)
MSD, 890108, Töflur, B 04 A B 01
HVER TAFLA INNIHELDUR:
Simvastatinum INN 10 mg eða 20 mg.
EIGINLEIKAR:
Lyfið blokkar HMG-CoA-redúktasa og dregur þannig úr nýmyndun
kólesteróls. Lyfið lækkar heildarkólesteról, LDL-kólesteról og VLDL-
kólesteról. 95% af lyfinu frásogast og bersttil lifrar. Próteinbinding í
plasma er meiri en 94%. Hámarksblóðþéttni næst 1-2 klst. eftir
inntöku. U.þ.b. 60% skiljast út í galli, en 13% í þvagi.
ÁBENDINGAR:
Veruleg hækkun kólesteróls í blóöi, þegar sérstakt mataræði hefur
ekki borið tilætlaðan árangur.
Frábendingar: Lifrarsjúkdómur eða hækkuð lifrarenzým í blóði af
ókunnri orsök. Ofnæmi fyrir lyfinu. Meðganga og brjóstagjöf. Lyfiö
ætti ekki að gefa konum á barneignaaldri nema notuð sé örugg
getnaðarvörn.
VARÚÐ:
Mælt er með því að mæld séu lifrar ensým í sermi fyrir meöferð og
síöan reglulega, sérstaklega, ef upphafsgildi eru verulega hækkuð
og ef sjúklingurinn neytir oft áfengis.
AUKAVERKANIR:
Algengar(> 1%): kviöverkir, hægðatregða, uppþemba, ógleði.
Sjaldgæfar (0,1-1%): slen, svefnleysi, höfuðverkur, lystarleysi, niður-
gangur, útþot. örsjaldgæfar (< 0,1%): vöðvabólga. Kreatíngildi í
sermi geta einstaka sinnum hækkað við meðferð með lyfinu.
MILLIVERKANIR:
Hækkuö blóðþéttni warfaríns og díkúmaróls hefur sést, ef lyfiö er
tekið samtímis þessum lyfjum. Þar sem hætta á vöövabólgu (myosi-
tis) eykst, ef náskylt lyf, lóvastatín, er tekið samtímis fíbrötum,
nikótínsýru og ónæmisbælandi lyfjum, t.d. cýklóspóríni, ber aö
fylgjast meö kvörtunum um vöðvaverki og kanna CK-gildi í sermi.
SKAMMTASTÆRÐIR HANDA FULLORÐNUM:
Byrjunarskammtur er 10 mg síðdegis. Auka má skammtinn á 4 vikna
fresti, ef meö þarf. Hámark eru 40 mg daglega. Jafnframt er haldiö
áfram sérstöku mataræði til aö lækka kólesteról.
SKAMMTASTÆRÐIR HANDA BÖRNUM:
Lyfiö er ekki ætlað börnum.
PAKKNINGAR:
Töflur 10 mg: 28 stk. (þynnupakkað) og 98 stk. (þynnupakkað).
Töflur 20 mg: 28 stk. (þynnupakkað) og 98 stk. (þynnupakkað).