Læknablaðið - 15.01.1995, Blaðsíða 86
72
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Umræða og fréttir
Gestur Þorgeirsson, formaður LR
Frá Læknafélagi Reykjavíkur
Af lagabreytingum LÍ
A aukaaðalfundi LI í nóv-
ember síðastliðinn voru sam-
þykktar lítið breyttar nánast all-
ar tillögur stjórnar LÍ til breyt-
inga á lögum félagsins. Meðal
annars var samþykkt að eitt
svæðafélag geti kosið fleiri full-
trúa á aðalfund LI en hin svæða-
félögin gera til samans. Með
þessari lagabreytingu er verið
að tryggja læknum svipaðan at-
kvæðisrétt óháð búsetu þeirra,
en læknar af Reykjavíkursvæð-
inu hafa um langa hríð í raun
haft takmarkað vægi á aðal-
fundum LÍ vegna þess ákvæðis í
lögum félagsins að ekkert eitt
svæðafélag megi hafa fleiri full-
trúa en hin svæðafélögin til sam-
ans. Samkvæmt nýju lögunum
skal nú kosinn einn fulltrúi fyrir
hverja 20 félagsmenn.
Þá var samþykkt að læknar
geti verið aðilar að LÍ með aðild
að svæðafélagi eða sem einstak-
lingar. Jafnframt var samþykkt
að læknar í svæðafélagi geti flutt
atkvæðisrétt sinn í annað félag,
þegar kemur til þess að kjósa
fulltrúa á aðalfund. Innan LR
verður að sjálfsögðu unnið að
því í samráði við sérgreinafélög-
in og félög ungra og eldri lækna,
að velja og kjósa fulltrúa á aðal-
fund. Vegna þeirra breytinga
sem nú hafa verið samþykktar á
lögum LÍ, er í ráði að skipa laga-
nefnd til að endurskoða lög LR.
Enda þótt fulltrúar LR á aðal-
fundum LÍ hafi mismunandi
skoðanir á ýmsum málum, eins
og eðlilegt er þegar fulltrúarnir
eru læknar úr ólíkum sérgrein-
um og jafnvel formenn FIH og
FUL, þá hafa allir þessir læknar
getað staðið saman að undir-
búningsvinnu fyrir aðalfundinn
og staðið saman að ályktunum.
Ef menn kjósa að vera aðilar
að LÍ sem einstaklingar hafa
þeir fullan rétt til að starfa í
nefndum og ráðum félagsins og
taka þátt í aðalfundi LI með
málfrelsi og tillögurétt eins og
aðrir læknar.
Ég hef hallast að því að
heppilegast væri fyrir íslenska
lækna að hafa svipað fyrir-
komulag og tíðkast á hinum
Norðurlöndunum og mælti með
því á aukaaðalfundinum. Þar
hafa menn víðast hvar tvö at-
kvæði, þar seni annað er bundið
í svæðafélagi en hitt í öðru félagi
svo sem sérgreinafélagi. Þar sem
sérgreinafélög eru mörg hver
mjög lítil á íslandi kæmi til
greina að menn gætu nýtt bæði
atkvæði sín í svæðafélaginu.
Enda þótt ég vildi helst sjá alla
lækna hér á Reykjavíkursvæð-
inu í LR, gæfi þessi aðgerð öll-
um einstaklingum, sem kysu að
vera utan svæðafélags, að
minnsta kosti eitt atkvæði. Það
er skárra en ekkert. Þessa leið
þarf auðvitað að útfæra nánar
og taka mið af okkar aðstæðum.
A aukaaðalfundinum kom
fram breytingartillaga í þá veru
að einstaklingarnir utan svæða-
félaga gætu einnig kosið full-
trúa. Þessi breytingartillaga var
samþykkt með einföldum
meirihluta. Þegar hún var síðan
borin upp með aðalbreytingar-
tillögunni, sem fjallaði um kjör
fulltrúa á aðalfund, náði hún
ekki tveimur þriðju atkvæða
eins og tilskilið var. Upphafleg
tillaga LI var þá borin upp og
samþykkt.
Samþykkt var að breyta 16.
grein laj>a LI, en þar hefur stað-
ið að LI semji um „kaup og kjör
lækna í samræmi við ákvæði
laga um umboð svæðafélaga".
Lagagreinin er núna þannig:
„LÍ sér um gerð kjarasamninga
lækna í samráði við svæðafélög
og önnur félög lækna, eftir því
sem við á hverju sinni“.
Sem sagt hér eiga samráðin
að gilda. LR hefur sem kunnugt
er haft nokkra sérstöðu hvað
samningamál varðar. LR hefur
haft umboð til samninga fyrir
sérfræðinga við TR og fyrir
lækna Borgarspítalans. Aðal-
fundur LR getur samþykkt að
breyta þessu fyrirkomulagi, ef
nauðsynlegt eða æskilegt er tal-
ið. Eins og læknum er kunnugt,
ekki síst sérfræðingum, er ekki
gert ráð fyrir starfsemi þeirra til
dæmis á sérfræðingastöðvunum
í Heilbrigðisáætlun íslands.
Enda þótt starfsemi sérfræðinga
á stöðvum þeirra sé talin bæði
góð, persónuleg og ódýrari en
þekkist í nálægum löndum fer
mikil orka samninganefnda og
ýmissa félagsmanna í að verja
tilverurétt þeirra og annarrar
sjálfstæðrar starfsemi sérfræð-