Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1995, Page 116

Læknablaðið - 15.01.1995, Page 116
100 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 meðferð mála gilda reglur, sem eru í viðauka við lög þessi. 22. grein Brottvísun úr félaginu Stjórn LÍ getur, að höfðu samráði við stjórn viðkomandi aðildarfélags, sé um það að ræða, vísað félagsmanni úr fé- laginu fyrir alvarlega vanrækslu skyldustarfa, velsæmisbrot eða fyrir ítrekuð brot, þótt hvert þeirra um sig varði aðeins sekt- um. Ennfremur ef hann neitar að greiða sektir. Sama gildir, ef félagsmaður sækir um eða tekur við embætti, stöðu eða starfi þrátt fyrir aðvörun stjórnarinn- ar. Úrskurð stjórnanna um brottvísun skal taka fyrir á næsta aðalfundi LÍ til staðfest- ingar eða synjunar. IX. kafli: Ýmis ákvæði 23. grein Upplýsingar til kandídata Stjórn LI skal sjá um, að kandídatar í læknisfræði frá Há- skóla Islands, svo og íslenskir eða erlendir ríkisborgarar, sem tekið hafa kandídatspróf er- lendis, en fá læknaréttindi á ís- landi, fái lög og siðareglur LÍ, svo að þeim sé ljós tilvera fé- lagsins, tilgangur þess og reglur, og réttindi þeirra og skyldur í því sambandi. 24. grein Útgáfustarfsemi Læknafélag íslands og Læknafélag Reykjavíkur eiga og gefa sameiginlega út Lækna- blaðið. Aðalstjórnir félaganna ráða ritstjóra að blaðinu, einn eða fleiri, til tveggja ára í senn. Stjórnirnar skipa ábyrgðar- mann blaðsins úr hópi ritstjóra. Stjórnirnar setja að öðru leyti reglur um rekstur blaðsins og ákveða þóknun til ritstjóra og annarra starfsmanna blaðsins. Útgáfustjórn skipa formenn félaganna og ábyrgðarmaður blaðsins. 25. grein Siðfræðiráð LÍ Siðfræðiráð Læknafélags ís- lands er ráðgefandi fyrir stjórn LÍ og svæðafélög þess og sér- greinafélög. Um skipun, verkefni og starfshætti ráðsins gilda reglur, sem eru í viðauka við lög þessi. 26. grein Læknaþing Almennt læknaþing skal haldið eigi sjaldnar en annað hvert ár í sambandi við aðal- fund. A þingum þessum skal flytja erindi um læknisfræðileg efni. Til fyrirlestrahalds skulu fengn- ir vísindamenn og læknar, inn- lendir og erlendir. 27. grein Breytingar á lögum, reglum og á Codex Ethicus Lögum þessum og Codex Et- hicus verður aðeins breytt á að- alfundi LÍ og greiði að minnsta kosti tveir þriðju hlutar fulltrúa atkvæði með breytingum. Tillögur til breytinga á þeim skulu sendar fulltrúum að minnsta kosti tveim vikum fyrir aðalfund. Ofangreint gildir einnig um breytingar á þeim reglum um meðferð á ágreiningi lækna og læknafélaga, meintum brotum á Codex Ethicus, lögum og sam- þykktum LÍ, svo og um reglur um skipun, verkefni og starfs- hætti Siðanefndar, Gerðardóms og Siðfræðiráðs, sem eru í við- auka með lögum þessum. Innan félagsins skal starfa 3ja manna laganefnd, skipuð af stjórn, til stöðugrar endurskoð- unar á lögum félagsins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.