Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1978, Side 28

Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1978, Side 28
Kári Sigurbergsson: Ö<fGT 6'° BANDVEFSSJtJKDOMAR Kollagensjúkdómar - bandvefs- s júkdómar . Sjúkdómasafnheitið kollagensjúkdómar var fyrst notað af Klemperer og samstarfs- mönnum hans 1 grein, sem birtist 1 tima- riti bandariska læknafélagsins árið 194213. Læknar fógnuðu þessi safnheiti á sjúkdóm- um, sem eiga sér ókunnar orsakir og erfitt er að afmarka, greina og meðhöndla. En brátt urðu menn þó óánægðir með þetta heiti, þar á meðal höfundurinn sjálfur og kom þar einkum tvennt til: Bæði var það, að læknum þótti oft betra að veifa röngu tré en engu, þetta varð einskonar rusla- kista, heiti, sem læknar settu á sjúkdóma, sem þeim tókst ekki að greina, og einnig hitt, að 1 þessum sjúkdómum verða ákaf- lega litlar breytingar á kollagen. Vegna þess að menn voru ekki allskost- ar ánægðir með nafnið kollagensjúkdómar hefur heitið bandvefssjúkdómar leyst það af hólmi 1 vaxandi mæli. En notkunin á þessu heiti hefur með árunum orðið æ losaralegri og sumir læknar virðast nota það nánast í sömu merkingu og orðið gigtarsjúkdómar10. Það hefur einnig verið fullyrt af heimskunnum sérfræðing- um í gigtarsjúkdómum, að svonefndir bandvefssjúkdómar, að undanskildum sjúk- dómnum systemic sclerosis, séu ekkert tengdari bandvef en sjúkdómar yfirleitt2. Meginhlutar bandvefjar. Bandvef má skipta í þrjá meginhluta: Frumur, þræði og grunnefni. Frumurnar mynda bæði þræðina og grunnefnið. Kollagen, sem er eggjahvítuefni, telst til þráðanna og er um margt merkilegt. Kollagen er hvorki meira né minna en 3C% af eggjahvituefni líkamans14. Kollagen getur birst í líkamanum á margan hátt og hefur þvi verið líkt við grófa strengi, ofnar mottur og jafnvel glærur. Grófari strengi má rekja upp í þætti og þættina í þræði (fibrils). Helstu aminosýrur, sem mynda kollagen eru glycine, proline og hydroxyproline. f tropokollagen er sam- eindin mynduð af þremur samansnúnum aminosýrukeðjum, alfakeðjum, (M um 100 þús.) og innan hverrar sameindar og milli sameinda eru tengingar, sem gefa kollagen mikinn styrkleika. Arfgengir gallar í bandvef. Áður en lengra er haldið, er rétt að taka fram, að svonefndir arfgengir gallar í bandvef (heritable disorders of connective tissue) teljast ekki til hinna eiginlegu bandvefssjúkdóma. Sjúkbngar með arf- gengan galla í bandvef hafa meðfæddan ágalla bundinn við einn þátt bandvefjar: kollagen, elastin eða mucopolysakkarið. Þessi annmarki getur valdið breytingum í fjölda liffæra og erfist samkvæmt erfða- lögmálum Mendels. Sem dæmi um þessa sjúkdóma má nefna: Einkennaflækjuna, sem kennd er við Marfan eða Marfansyndrome, Ehlers-Danlos syndrome, cutis laxa, osteogenesis imperfecta, homocystinuria, alkaptonuria og Hurler syndrome. Þessa sjúkdóma getur á stund- um verið erfitt að greina frá hinum eigin- legu bandvefssjúkdómum. Til bandvefssjúkdóma telst ekki heldur afbrigðileg bandvefjarmyndun, svo sem keloid og Dupuytréns kreppa. Helstu bandvefss júkdómar. Helstu bandvefssjúkdómar eru lupus erythematosus disseminatus (systemic lupus erythematosus) eða rauðir úlfar, arthritis rheumatoides eða iktsýki, dermatomyositis, progressiv systemic sclerosis, mixed connective tissue disease, periarteritis nodosa og febris rheumatica eða gigtsótt. Nokkrir aðrir sjúkdómar eru oft taldir til bandvefssjúkdóma; Spondylitis ankylo-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.