Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1978, Síða 147
inn sviti, titringur, munnþurrkur, nið-
urgangur, stundum herpingur eða kökk-
ur 1 hálsi, þrýstingstilfinning í brjósti
oft með aukinni öndunarþörf5™), kvíða-
verkur 1 brjóstinu eða kviðnum og ekki
síst aukin spenna 1 þverrákóttum vöðv-
um. Þótt einkennin séu fleiri verður
þessi upptalning látin nægja. Lang-
varandi kvaði getur leitt til sjúklegs
ástands. Dæmi: hjartsláttartruflun,
háþrýstingur, oföndun (hyperventilations-
syndrome), ristilkrampi (colon irrit-
able), vöðvagigt.
Það er ógerlegt að vera andlega
spenntur, reiður eða kviðinn (sem
fyrir villimann mundi þýða að vera
tilbúinn til árásar eða flótta) án þess
að hafa spennta vöðva. Vöðvar hald-
ast spenntir þannig að þeir eru vaktir
til virkni og hemlaðir samtímis.
Vöðvaspennan getur verið um allan
líkamann, en er oft mest 1 þeim vöðv-
um sem hafa mest með tjáningu til-
finninga að gera, vöðvum 1 höfði,
hálsi og handleggjum, ásamt öndunar-
vöðvum. Sjálf vöðvaspennan, með til-
heyrandi óþægindum viðheldur kvíða
(sbr. róandi áhrif slökunar). Notkun
vöðvarafrits (biofeedback) ,^) sem fær-
ist 1 vöxt erlendis 1 meðferð á vöðva-
gigt, einkum á spennuhöfuðverk, hef-
ur gert mönnum ljósara en áður hið
nána samband vöðvaspennu og tilfinn-
inga.3004) Þar sést skýrt hvernig að-
ferðir sem margir nota til að binda
reiði og kvíða, t.d. "að bita á jaxlinn
og bölva 1 hljóði", eða "láta ekki á
neinu bera", (hvort tveggja stjörfun -
xx) Fólk taiar um að ná ekki "djúpa andan-
um". Þetta einkenni ásamt þrýstings-
eða fargtilfinningu á brjóstinu er ná-
tengt og trúlega afleiðing af aukinni
spennu í öndunarvöðvum, enda eru
þessi einkenni mjög oft samfara
"myosum" milli rifja, í brjóstvöðvum,
axlavöðvum og hálsi með viðeigandi
höfuðverk.
xxx) Biofeedback er notað til að kenna
fólki að stjórna vöðvaspennu. Svipuð
tækni er notuð til að kenna stjórn á
hjartslætti, blóðþrýstingi o.fl. í starf-
semi líkamans, sem hingað til hefur
verið talið óháð stjórn viljans.
"immobilisation"), geta leitt til spennu
og verkja. Langvarandi kviði, þung-
lyndi, sem einnig er spennt ástand,
eða reiði getur eðlilega komið af stað
og viðhaldið þessum víítahring. Sér-
lega hætt virðist þeim mörgu, sem
hafa lært svo rækilega að bæla and-
legan sársauka eða reiði, að þeir tjá
sjaldnast og vita jafnvel ekki hvenær
þeir hafa slikar tilfinningar, finna að-
eins spennuna, kvíðann, eða jafnvel
aðeins verkinn, sem af leiðir.3000^)
Þá hættir þeim til að byggja upp
vöðvaspennu, sem geta ekki varpað
af sér áhyggjum dagsins að kvöldi.
Sem betur fer getur margt rofið þenn-
an vitahring. Eðlilegasta aðferðin til
að veita spennu útrás er að leysa
vandamálið sem veldur. Þetta er oft
hægt. En stundum er ástæðan óljós,
stundum er litlu hægt að breyta þótt
ljóst sé hvað er að. Þá reynir á
hæfnina að lifa i flóknum mannheimi.
Líkamleg áreynsla - útivist - sund -
íþróttir - slakar á andlegri og líkamlegri
spennu, gefur líkamlega þreytu og þar
með endurnærandi svefn^>®). Árangur,
auk slökunar, er aukin orka og þrek,
útvíkkuð þreytumörk, endurhæfing hreyf-
ingakerfis, sem oft er allt í senn þrek-
litið, spennt og staðnað.
Viðtal við einhvern sem skilur.
Lyf - gegn kviða, spennu, svefnleysi^). -
Mjög virk ef heppilega notuð, en kenna
líitið.
Biofeedback - helst með psychotherapy.
Innhverf íhugun.
Yoga.
O.fl.
xxxx) Vöðvakerfið er gert til að hreyfa að
boði taugakerfis og tilfinninga, en er
oft notað sem hemlakerfi til að stöðva
framrás tilfinninganna. Vöðvakerfið
getur fengið það þreytandi hlutverk
að byrgja inni um langan tfma tilfinn-
ingar sem ekki má tjá (skv. mati
einstaklingsins). Þannig getur stif og
óeðlileg staða (rigid, inibited posture)
verið óbein tjáning á ótta við að vera
of stór, of litill, of áberandi eða
varnarlaus, tjáð dapurleik þess, sem
er undir oki, og þorir elíki að bylta
þvi af sér eða sorg, sem ekki er
leyft að fá útrás í gráti.
145