Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1978, Blaðsíða 37
sögu svo að sem minnst fari fram hjá
lækninum (5). Þetta þýðir nánast total
sögu og skoðun 1 sumum tilfellum. í
tryggingakerfi nútímans verður nánast úti-
lokað fyrir endurhæfingarlækninn að "vinna
sjúklinginn upp" að fullu eins og nú er
háttað taxtagreiðslu, nema um sjúkrahús-
vinnu sé að ræða. Endurhæfingarlæknir
fær greitt eftir lægri taxta en bæði medicin-
er og neurolog og getur þvi tæpast funker-
að effectivt nema 1 samstarfi við hina
kollegahópana svo vel fari.
Það væri að bera 1 bakkafullan lækinn
að fara að kenna almennum læknum
skoðunaraðferðir til greiningar baksjúk-
dóma, þar eð allir kunna algengustu að-
ferðir. Það sem ég legg þó mesta áherzlu
á, er að nákvæm ýtarleg saga er nauðsyn-
leg. Sjúklingur skal fara úr öllum fötum
nema nærbuxum og konur mega hafa
brjóstahaldara. Palpera þarf hryggvöðva
og prófa hreyfingar hryggs og útlima 1
öllum plönum. Sjúklingar með lumbago
hreyfa yfirleitt lumbarhrygginn lítið við að
beygja sig áfram og mesta hreyfingin fer
fram 1 mjaðmarliðum. Góð viðmiðun
hvað snertir eðlilega hreyfingu er að sjúkl-
ingur skal nánast geta snert tær með
fingurgómum 1 fullri flexion og 1 hliðar-
beygju skulu fingurgómar geta náð niður
að haus á sperrilegg. Habitus og rétt-
stöðu skal skoða.
Nákvæm neurologisk skoðun er fram-
kvæmd. Húðskyn er oftast prófað gróft,
og sé um sensibilitetstruflun að ræða, skal
prófað það nákvæmt, að unnt sé að greina
hvort sé truflun svarandi til dermatoms.
Varðandi útbreiðslu dermatoma vísast 1
textabækur í neurologiu, neuroanatomiu og
anatomiu.
Nákvæmt vöðvakraftapróf er framkvæmt.
Eftir international (alþjóðlegri) flokkun er
um 5 kraftstig að ræða, 5 er eðlil. kraft-
ur. 3 þýðir að unnt sé að beita vöðvum
gegn þyngdarafli. 0 þýðir algjör lömun.
Vöðvar, sem ég kraftprófa eru m.t.t.
lumbago gjarnan abdominalvöðvar, mjaðm-
arflexorar, quadriceps, tibialis anterior,
ext. hallucis longus, gluteus medius,
gluteus maximus, hamstrings, gastrosoleus
og distal táflexorar.
Reflexar skulu alltaf prófaðir, þ.e.
djúpir sinareflexar, svo og Babinski.
Laséque próf er framkvæmt á klassisk-
an hátt, en passa þarf að rugla ekki sam-
an stífum hamstringsvöðvum og pós.
Laséque. Sé vafamál hvort Laséque sé
positivur, má prófa að láta sj. sitja flöt-
um beinum. Sé slíkt unnt er Laséque
neikvæður. Krossaður Laséque bendir oft
a disk prolapse L3 L4. Öfugur pósitívur
Laséque bendir oft á háan disk, sem er
mjög sjaldgæfur. Patrick's próf þ. e.
FABERE (flexion-abduction-ext. rotation-
extension í mjaðmarliðum) getur bent til
coxarthrosis.
Sársaukaftill extension 1 hrygg bendir
stundum til s.n. .facet syndrome. Halli
(list) er oft þannig að convexitet hryggsúlu
veit frá hinu irriteraða svæði, en er ekki
alltaf svo. Stallmyndun á hrygg getur
bent á spondylolisthesis.
Subjectiv einkenni, svo sem verkur við
hósta, hnerra, rembing og hlátur með
radiation í lim, bendir gjarnan á radicular
irritation. Aukinn verkur að nóttu (hrygg-
ur lengist við hvíld og togar þá meir 1
rætur), svo og positivur Queckenstedt
bendir til hins sama.
Ranns ókni r.
Ég tel mjög æskilegt að hafa almennan
status og rtg. myndir af hrygg. Sér-
rannsóknir eru indiceraðar, ef klíráskur
grunur er staðfestur um disk prólapse.
Til greina kemur að lumbalpunktera.
Mæla skal prótein f. eggjahvitu. Hæstu
normalmörk eru 40 m^/o. Hækkun á prót-
einum getur stutt diskdiagnósis. Sé grun-
ur á, að malignitet sé orsök bakverkja,
t.d. carcinosis arachnoidalis skal senda
mænuvökva 1 cytologiu og leita að malign
frumum. Myelografia er indiceruð ef að-
gerð er fyrirhuguð. Er hún yfirleitt
talin óæskileg nema til lokalizationar á
prolapse, þar eð einkennaskörun (overlap)
er þekkt milli L4 og L5 syndrome og L5
Si syndrome, miðað við hvort diskprolapse
er milli L4 L5 eða L5 Si. Efni til myelo-
grafiu eru annaðhvort olíuupplausnir eða
vatnsupplausnir, sem kontrast. Norður-
landamenn hallast nú orðið mikið að vatns-
uppleysanlegum efnum. Bandaríkjamenn
halda sér meir að olíu og telja aukaverk-
anir of miklar enn af vatnsleysanlegum
efnum. Diskografia hefur verið notuð, en
vegna komplicationa svo sem infectiona,
er sú aðferð almennt fordæmd. Samt
verður að nota diskografiu, sé ætlunin að
leysa diska (nucleus pulposus) upp með
chemiskum efnum.
35