Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1978, Síða 142
Oddur Bjarnason
VÖÐVAGIGT
Það hefur komið 1 minn hlut að fjalla
um skilgreiningu, tfðni, orsakir og orsaka-
tengsl vöðvagigtar.
I. Skilgreining
Það er erfiðleikum bundið að skilgreina
vöðvagigt þannig að fullnægjandi geti talizt.
Mörg þeirra heita, sem þetta fyrirbæri
hefur hlotið, bera þessa erfiðleika með
sér. Þannig er "Non-articular rheum-
atism" augljóslega heiti á ruslakistu og
ekki er ljóst, hvað f henni getur leynzt.
Erfiðleikarnir eiga sér ýmsar orsakir,
t.d.
1. öskýr mörk milli vöðvagigtar og ann-
arra gigtarsjúkdóma,
2. erfiðleikar við greiningu gigtarsjúk-
dóma,
3. áhugaleysi á vöðvagigt lækna þeirra, er
fást við rannsóknir á gigtarsjúkdómum
og kennslu í þeim.
Vöðvagigt telzt fremur einkennasafn en
sjúkdómur. Þau einkenni og önnur sér-
kenni, sem mest ber á og nota mætti til
almennrar skilgreiningar á vöðvagigt, eru
þessi:
1. Helztu einkenni:
a. verkur f vöðvum
b. eymsli í vöðvum
c. engar sýnilegar breytingar í vöðvum
d. langvinn þreyta
e. minnkað vinnuþol
f. andleg vanlfðan - þunglyndi og kvfði
g. svefntruflun
2. Meðferð heldur árangurslftil
3. Horfur furðu slæmar
Þessi skilgreining er ekki nægilega ná-
kvæm, til þess að hún verði notuð við
rannsóknir á vöðvagigt. Smythe hefur
sett fram eftirfarandi rannsóknarskilgrein-
ingu:
1. Aðalskilmerki:
a. vöðvaverkir f meira en S mánuði
b. stirðleiki f meira en 3 mánuði
c. staðbundin eymsli
d. eymsli á 2 öðrum stöðum
e. eðlilegt sökk, SGOT, RF, ANF,
vöðvaenzym og röntgenmyndir af
spjaldliðum
2. Aukaskilmerki:
a. langvinn þreyta
b. andleg vanlfðan
c. svefntruflun
d. morgunstirðleiki
Rannsóknarskilgreiningar virðast vera
nokkuð á reiki, þvf að Moldowsky, sem
hefur unnið að rannsóknum á vöðvagigt
með Smythe, notaði nýlega aðra skilgrein-
ingu.
II. Tíðni
Það mætti ætla, að vöðvagigt skipti
ekki miklu máli, ef marka má af þvf
rúmi, sem hún skipar f viðurkenndum
kennslubókum f lyflæknisfræði - venjulega
um fjórðungur úr blaðsfðu. Henni er
einnig heldur litill gaumur gefinn á sjúkra-
húsum. Það er þessvegna skiljanlegt, að
læknar verði undrandi, þegar þeir snúa
sér að almennum lækningum utan sjúkra-
húsa og komast að raun um, að vöðvagigt
er meðal algengustu vandamála, sem koma
til úrlausnar hjá þeim.
Það er ekki vel ljóst hver er tfðni
vöðvagigtar. Það hafa engar rannsóknir
verið gerðar hér á landi til könnunar á
þvf - að minnsta kosti ekki samkvæmt
þeirri skilgreiningu, sem rakin var hér
að framan. Líklega er tfðni vöðvagigtar
meiri en samanlögð tfðni iktsýki og slit-
gigtar. Rannsókn, sem gerð var f Bret-
landi, leiddi f ljós, að 10,9% af fjarvist-
um frá vinnu vegna veikinda stöfuðu af
gigtsjúkdómum og einnig mátti rekja 10,9fo
af fjölda tapaðra vinnudaga til þeirra.
Vöðvagigt olli um helmingi þeirra fjar-
vista, sem stöfuðu af gigtsjúkdómum, og
fjórðungur af fjölda þeirra vinnudaga,
140