Læknablaðið : fylgirit - 01.07.1978, Blaðsíða 152
Kristín Erna GuSmundsdóttir
sjúkrþjAlfun við
VÖÐVAGIGT
VöSvagigt er samheiti notað um marg-
vísleg einkenni frá vöðvakerfi líkamans.
Orsakirnar geta verið margar, bæöi
organiskar og geðrænar. Verða þær ekki
ræddar nánar hér en farið örfáum orðum
um hvað sjúkraþjálfari hefur uppá að bjóða
1 sambandi við meðferð þessara sjúklinga.
Hitameðferð. Hitagjafar sem hita
með leiðni eru: Heit vatnsböð, heit loft-
böð og heitir rakir bakstrar. Hitalampar
hita með geislun og stuttbylgjur framkalla
hita með aukinni frumuhreyfingu af völd-
um rafsveiflna. Allur hiti eykur blóð-
streymi til þess svæðis sem hitað er, en
stuttbylgjur hita dýpst ofani vefina. Aftur
á móti hafa þær ekki sömu slakandi áhrif
á vöðva 1 gegnum hitaskynjara 1 húðinni
og aðrir hitagjafar. Hiti á húð dregur
úr starfsemi efferentra tauga til vöðva-
spólu og minnkar þar með vöðvaspennu.
Ahrifin vara stutt eftir að hitagjöf er hætt.
Hvaða hitagjafi er valinn hverju sinni fer
eftir ýmsum ytri aðstæðum og ástandi
sjúklingsins sem á að meðhöndla. Heit
vatnsböð eru þægileg og auðveld f fram-
kvæmd. Þau gefa almenna slökun og vel-
liðan og henta vel ef vöðvaspenna-bólga
er útbreidd. Heit loftböð og hitalampar
gefa slökun, en ekki sömu velliðan og
vatnsböð. Heitur, rakur bakstur er sá
hitagjafi sem sjúklingnum likar yfirleitt
best. Sjúklingurinn fær öryggistilfinningu
og 1 sumum tilfellum fær hann fullnægt
umhyggjuþörf sinni þegar bakstrarnir eru
lagðir. Bakstrarnir gefa almenna og
staðbundna slökun og aukna vellíðan.
fsmeðferð . ís eða kuldi hefur bólgu-
eyðandi og deyfandi áhrif. Hann dregur
úr leiðnihraða tauga og með því að minnka
starfsemi afferentra tauga frá vöðvaspólu
minnkar vöðvaspenna. Staðbundin slökun
næst. Séu notaðir ísbakstrar. allt að 20
mín. fæst fram minnkuð starfsemi vöðva-
spólunnar sem varar 6-7 klukkustundir.
Sé aftur á móti notuð sú aðferð að nudda
með ísmola yfir svæðið sem meðhöndla
þarf eru áhrifin skammvinn. Þetta nægir
þó oft þar sem ís er notaður við akutar
myosur og vöðvabólgu sem kemur eftir
skammvinna ofreynslu. Kuldi dregur úr
súrefnisþörf vöðva en eykur blóðstreymi f
djúptliggjandi æðum. Þannig stuðlar kuldi
að mettun vöðvans á súrefni, en vöðvar
sem lengi hafa verið spenntir eru oft f
mikilli súrefnisþörf. Mikil hyperæmia
myndast þegar kaldur bakstur er fjarlægð-
ur og opnast þar með háræðakerfið og
nutration yfirborðsins eykst. fs hefur oft
betri staðbundin áhrif en hiti en aftur á
móti næst ekki eins góð almenn slökun og
vellíðan með notkun hans.
Hljóðbylgjur (mikromassage)
mynda titring f frumunum og auðvelda
efnaskipti. Hitaáhrif eru óveruleg. Hljóð-
bylgjur hafa mjög staðbundin áhrif, og
koma þvi að mestu gagni við meðhöndlun
tendinita og annara vel lokaliseraðra
affektiona.
Slökun er mikilvægur þáttur f meðferð
vöðvagigtarsjúklinga sérstaklega þar sem
streita eða aðrar geðrænar truflanir eru
ástæður vöðvaspennu. Aðferðirnar eru
margvíslegar en markmiðið hið sama, það
er að segja: Að kenna sjúklingnum að
þekkja líkama sinn, að nota rétta öndun,
að fá hann til að þora að slaka á spennt-
um vöðvum þannig að hann geti hreyft sig
óhindrað án þess að finna til.
Nudd. Ekki verður farið út f það hér
að skilgreina nudd né lýsa hinum mörgu
handtökum sem þar koma fyrir, en full-
yrða má að það er áhrifamikil aðferð sem
sjúkraþjálfarar nota gjarnan sem lið
meðhöndlun vöðvagigtarsjúklinga og þá oft-
ast sem frumstig meðhöndlunar. Nudd er
engin alhliða lajkning á vöðvagigt og skal
þvf notast f hófi, en hér má hafa f huga
þörf margra sjúklinga fyrir líkamlegan
kontakt frekar en aðra meðferð. Þá er
nudd besta leiðin til að ná þvf sambandi
150