Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.06.1931, Síða 6

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.06.1931, Síða 6
196 Endurreisn þýzka flotans. [St&fnir tímans og hins ókomna. Foringj- ar gamla, þýzka flotans ákváðu að hefjast þegar handa að und- irbúningnum og æfa þá, sem við skyldu taka, og eg var svo hepp- inn, að eg var valinn til þess að hafa það starf með höndum. Dag nokkurn sagði Behnke að- míráll við mig: „Luckner, við verðum að útvega skólaskip fyr- ir ung liðsforingjaefni, og við verðum að búa það út, og halda því úti. Vilt þú taka það að þér?“ „Það er mér sönn ánægja“, sagði eg. Innan þýzka flotans hafði sá vani verið ríkjandi, að þjálfa liðs foringjaefnin á seglskipum, þar sem þeim gafst kostur á að kynn- ast siglingarlistinni eins og hún áður var, og hafði þessi aðferð gefist svo vel, að vart myndi önnur betri fundin. Nú átti það fyrir mér að liggja, að stjórna slíkri skipstegund, sem eg hafði mesta ást á, og þar áttu foringja- efnin að kynnast list og lögmál- um siglinga. Fyrsti erfiðleikinn var sá, að við höfðum ekkert skipið og enga peningana. Stjórnin vildi ekkert láta af hendi rakna. Eg varð að afla alls. I Hamborgar-höfn lá seglskip eitt. Áður hafði það ver- ið ágæt fermöstruð skúta, en nú var það úr sér gengið og í lama-i sessi, enda gamalt orðið og not- að. Það var ekki völ á betri skútu, og eftir miklar vífilengj- ur og krókaleiðir fékk eg tang- arhald á henni. Þá skorti mig öll föng til skipsins og fæðu handa mönnunum. Föng voru nóg í her- forðabúri ríkisins, en ekki var við það komandi, að stjórnin gæfi leyfi til að hagnýta sér þau. Eg hélt því til forðabúranna, en gæzlumennirnir þar voru nær því einvörðungu „bolshevikar". „Jæja, félagar", sagði eg. — „Hér hefi eg skip við hendina, og við ætlum okkur að endur- reisa þýzka flotann, en nú skort- ir okkur föng. Hér hafið þið nóg af öllu, og getið auðveldlega hjálpað gömlum sjókrabba um það, sem hann þarfnast. Hér er- uð þið sjálfir umsjónarmenn, og hver ætli komist að því, þótt þið veitið mér nokkura úrlausn?“ Þeir voru mótfallnir hugmynd- inni um endurreisn þýzka flot- ans, en eg sat yfir þeim, og sagði þeim sögur frá liðnum tímum, og svo fór, að þeir sannfærðust um, að eg var gamall og gallharður sjóari. Þeir hlóu dátt að skip- inu mínu, og töldu það harla frumlegt. „Jæja, greifi“, sögðu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.