Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.06.1931, Blaðsíða 98
SILDAREIN KASALAN.
[Til þess að sýna daami upp á einkasölubrölt stjómarinnar, hefir Jóhann Jósefs-
ason alþm. ritað þessa grein um síldareinkasöluna. Er hún gott daani, því að ef nokk-
ursstaSar hefði verið hægt að réttlæta afskifti ríkisins, þá var það hér. Aðra grein
hefði mátt rita um síldarbræðsluverksmiðju ríkisins, og hefði sú grein ekki sýnt
.glæsilegri niðurstöðu. En þar er reynslan styttri, og því var einkasalan frekar valin
aem dæmi. — Bitstj.].
Síldareinkasalan hefir nú
Ætarfað í 3 ár. Verkefni hennar
var að drag-a úr áhættu síldarút-
-vegsins og gera hann að trygg-
ari og arðsamari atvinnuvegi.
Eftir þessi 3 ár er nú svo komið,
_að sjómenn og útgerðarmenn yf-
irleitt eru mjög óánægðir með
.ýmsar ráðstafanir Einkasölunn-
ar, og eru þegar háværar kröf-
nr uppi um það, að breyta verði
til um starfsháttu og umráða-
menn, ella verði að afnema
Einkasöluna að öllu leyti. Það,
sem aðallega er óánægjuefni
hlutaðeigenda, má telja að sé:
1) Óhóflegur kosfnaður við
reksturinn. 2) Markaðir hafa
þrengzt, svo að um munar, eink-
mm sænski saltsíldarmarkaður-
inn. Þrátt fyrir það, að takmörk-
uð var framleiðslan, hefir verð-
ið lækkað. 3) Hlutdrægni hefir
verið beitt við útborganir á síld-
arverði, þannig, að einum hefir
verið borgað meira, öðrum
minna, á sama tíma. 4) Ennfrem-
ur hefir Einkasalan áritað ávís-
anir einstakra síldareigenda með
ákveðnu greiðsluloforði, en neit-
að öðrum um það sama, o. s. frv.
Á Alþingi hafa skakkaföll og
ýms stjórnarafglöp Einkasölu-
stjórnarinnar verið gerð að ser-
stöku umtalsefni hvað eftir ann*
að. Má nefna sölusamninginn
fræga við Brödrene Levy,
faldsgarantíið“, óreiðuna á inn-
flutningi síldartunna og hlut-
drægni í úthlutun þeirra. En allt