Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.06.1931, Blaðsíða 51
Stafnir]
StjÖrnarfarið. 241
tekjur Islands einar, heldur all-
ar tekjur, og meira að segja þar
að auki allar eignir ríkisins þeim
ákveðnu böndum, sem þeir vildu
kalla veðsetning áður og töldu
landráð! Tr. Þ. sagði, að skrifa
ætti „veðsetninguna" 1921 „blóð-
ugum stöfum í hjarta þjóðarinn-
ar!“ Nú hefir hann dæmt sjálf-
an sig.
En þó er nú eftir stærsti kinn-
hesturinn, og hann er stærri en
svo, að þessi ritgerð rúmi hann.
Hann er efndir stjórnarinnar á
aðalstefnumáli flokksins, því
máli, sem tilvera Framsóknar-
flokksins er reist á: Efling land-
búnaðarins og því, að halda
fólkinu í sveitunum. Þetta
þyrfti að ræða alveg sér á parti,
svo víðtæk eru svik Framsóknar
í þessu máli. En í raun og veru
er nóg að benda á árangurinn:
Eandbúnaðurinn er nú í því
mesta öngþveiti, sem hann hefir
hokkru sinni komizt í, kaupgjald
sPennt upp úr öllu valdi, afurð-
ifnar fallnar, lánsfé lítið og dýrt
°g fólksstraumurinn úr sveitun-
u® Örari en nolckru sinni áður.
Þetta er árangurinn af fjög-
urra ára starfi Framsóknar-
stjórnarinnar fyrir landbúnað-
inn. Þetta er orðheldnin í sjálfu
^&in stefnumálinu.
Ef nefna á dæmi á víð og
dreif má minna á:
1. Raforkuvéitumálið hefir
Framsókn tafið svo, að það er
ekki enn hlaupið af stokkunum.
2. Rekstrarlánafrumv. tafði
Framsókn og spillti því síðan svo
herfilega, að rekstrarlánin mega
heita ónotandi vegna þess, hve
þau eru óhentug og dýr.
3. Kaupgjaldið beinlínis hækk-
aði stjórnin með því að stuðla
tvívegis að því að hækka kaup
verkamanna við sjó, og láta
greiða hærra og hærra kaup við
framkvæmdir ríkissjóðs.
4. Landbúnaðarbankann eyði-
lagði stjórnin með því að fara
svo með lánstraust landsins, að
lánsféð verður of dýrt.
5. Loks sveik stjórnin alger-
lega það loforð, að nýja lánið
skyldi fyrst og fremst vera
„landbúnaðarlán“.
Bóndi einn, sem fylgt hefir
Framsókn, sagði, að hann skyldi
snúast af einlægni gegn Fram-
sóknarstjórninni, ef honum yrði
sannað það, að Landbúnaðar-
bankinn hefði ekki fengið meg-
inþorra lánsfjárins síðasta, 12
milljónanna. Þetta var eðlileg af-
leiðing þeirra yfirlýsinga í stjórn-
arblaðinu, að nýja lánið væri ein-
göngu landbúnaðarlán. Af því að
16