Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.06.1931, Blaðsíða 52
242
Stjómarfarið.
[iSterfnrr
svo mun vera um fjölda bænda
sem þennan, víðsvegar um land,
að þeir fylgja Framsókn vegna
þess að þeir trúa umsögnum
Tímans um þetta, þá er rétt að
vitna þeim til réttari skilnings í
ræðu fjármálaráðherrans, sem
birtist í Tímanum, 16. blaði, 21.
febr. 1931. Þar er gerð grein
fyrir því, í hvað enska lánið hafi
farið.
Lánið var 540.000 pund ster-
ling, sem er tæplega 12,000,000
krónur. Af því urðu afföll lxfa°fo,
eða um 900,000, og í fyrstu
vaxtagreiðslu tók Hambrosbanki
265.000.
Til skiftanna komu hér heima
10.790.000 krónur. Þetta er þá
það fé, sem Landbúnaðarbank-
inn átti að fá, eftir því, sem
fjöldi bænda hefir haldið, eftir
að hafa lesið Tímann.
Nú lýsir fjármálaráðherra því
yfir í nefndri ræðu, að féð hafi
farið til þessa:
Til Landsbankans, stofnfé .................. 3,000,000 kr.
— síldarbræðslu .......................... 1,300,000 —
— Landspítalans............................. 847,000 —
— Arnarhvols ............................... 351,000 —
I Súðina.................................. 231.000 —
— Útvarpið (líklega verzlunina)......... 152,000 —
og svo í Landbúnaðarbankann .............. 3,600,000 —
Afganginum kvað svo vera
enn óráðstafað (!) í ríkissjóði.
Þetta er þá orðið úr „búnaðar-
láninu“ hans Einars Ámasonar.
Einar þrjár milljónir og tez
hundruð þúsund krónur hafa
farið í Landbúnaðarbankann. Og
þó bætast tveir agnúar við allt
það, sem nú hefir verið nefnt.
Annar er sá, að lánið er of
dýrt fyrir landbúnaðinn.
Hinn er sá, að það er nú upp-
víst orðið, að helmingur af þessu
fé hefir farið til tveggja verzlun-
arfyrirtækja, Sambandsins og
Kaupfélags Eyfirðinga. Það verð-
ur þá eftir 1,8 milljón af „land-
búnaðarláninu" í bankanum tií
ráðstöfunar handa bændum-
Enda kvað hann nú þegar ver»
„peningalaus"!!
Er nú vonandi ekki erfitt fyr-
ir þá, sem lesa vilja með opnun*
augum, að sjá, hve vegL'g'ir
efndirnar hafa orðið í þessu efni-