Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.06.1931, Blaðsíða 54
244
Stjórnarfarið.
['Stefnir
og það er að mjög miklu leyti
skrifað af mönnum í landsstjóm-
inni, sérstaklega einum þeirra.
Að opna Tímann og leita að
ósæmilegri blaðamennsku, er
eins og að leita salts í saltnámu,
þar sem allt er salt, salt í gólfi,
salt í veggjum, salt í lofti; hús-
in úr salti, veggir úr salti og hver
hlutur úr salti.
Þetta hefir fylgt þessu blaði.
Er ómögulegt að gera annað en
nefna dæmi af handahófi og
opna hvaða tölublað, sem verk-
ast vill. Menn muna eftir 600
þúsund króna gjöfinni til stór-
tekjumanna, sem klifað var á,
eg held árum saman, og var
ekkert annað en ósannindi, sem
þeir vissu vel um, sem skrifuðu.
Eða 9 miljón króna lánið í
Ameríku. Tíminn varð klökkur,
er hann talaði um 90 kr. skulda-
bagga, jafnt á ungbarnið í vögf
unni og gamalmennið á grafar-
bakkanum, eins og vinnandi
fólkið. En þessi tár voru krókó-
dílatár, því að þeir, sem þetta
skrifuðu, vissu sjálfir, að aldrei
var notað nema 1 miljón af þess-
ari lánsheimild.
Þetta var nú í tíð fyrverandi
stjórnar, þegar Tíminn var and-
stæðingablað og ráðherrar Fram-
sóknar óbreyttir liðsmenn. Sum-
ir góðir menn hafa verið ódælir
í æsku, rneðan þeir fundu ekki
ábyrgðina, en vaxið svo með
vandanum. Var sagt um Pál
biskup Jónsson, hinn ágætasta
höfðingja, að hann hafi „engi
jafnaðarmaður verið, þó'að hann
yrði nú góður, er hann varð
biskup“.
En því miður verður þetta ekki
sagt um þá menn, sem sýna speg-
ilmynd síns innra manns í grein-
um Tímans. Þar hefir engin
breyting til batnaðar orðið við
ábyrgðina og vegsaukann. Grípi
menn svo að segja hvaða tölu-
blað sem menn vilja, allstaðar
blasir við vond blaðamennska og
ódrengskapur í leik.
Eg sé hér t. d. fyrirsögn á
grein: „Frá Búnaðarbankanum.
Stofnun veðdeildar. Vaxtalækk-
un“. 1 þessari fyrirsögn einni eru
vísvitandi ósannindi sögð án þess
að blikna. I Stjórnartíð^indunum,
A-deild, er reglugerð um starf-
semi Búnaðarbankans. Þar er í
16. grein (bls. 245—246) svo á-
kveðið, að vextir veðdeildar skuli
vera 5%. En í Tímagreininni er
verið að skýra frá því, að veð-
deildin sé stofnuð og þar eigi að
greiða 6%, eða 1% hærra. Og
með köldu blóði er þetta kölluð
vaxtalækkun!