Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.06.1931, Blaðsíða 81
Stefnir]
Stjórnarfarið.
27B
á lofti af stjórnarsinnum, Það er
sú firra, að nú sé óhætt að stöðva
framkvæmdir, af því að svo mik-
ið hafi verið unnið undanfarið.
— Þetta getur virzt gott og gilt,
en það er hrein rökvilla. Einmitt
af því að mikið hefir verið unn-
ið undanfarandi, er margfalt
erfiðara að hætta nú í vonda ár-
ferðinu, og kasta frá sér öllum
þeim, sem hafa haft vinnu.
En svo er ekki nóg með þetta,
heldur er það víst, að fé hefir
farið í stríðum straumum í sukk
°g óleyfilega sóun. Verður þetta
ekki uppvíst til fulls, meðan
stjórnin situr, en ýms dæmi má
tína úr landsreikningnum.
Hvanneyrarf jósið er frægt
Weð sína 200 króna húsaleigu
eftir hverja belju, og svo að
segja allt byggt í heimildarleysi
(alls um 130,000 kr., eitt fjós).
Kostnaðurvið löggæzlu erorð-
inn svo gífurlegur, að margfalda
þarf upphæð þá, sem til þess hef-
ir verið veitt. Er þarna alinn
s®gur manna, sem vafalaust eru
^argir þarfir ríkinu, en aðrir
sjálfsagt þarfari stjórninni. —
Þarna fara á annað hundrað þús-
uwda á ári.
Til þess að reisa alþýðuskóla
1 sveitum, eru veittar 1928—30
kr. 108,000, og virðist það sóma-
samleg fjárhæð. En stjórnin hef-
ir greitt til þessa 450,000 krónur,
og megin þorrann af þessu til
eins einasta skóla, Laugarvatns-
skólans. Til hans eru komin
mörg hundruð þúsunda, og yfir-
skoðunarmenn landsreikningsins'
hafa orðið að kvarta undan rugl-
Sngslegum og ófullkomnumí
reikningsskilum..
Til utanfararstyrkja hefir
stjórnin heimild upp á 6000 kr.
á ári. Er þetta nauðsynlegt, er-
landið þarf að senda fulltrúa á
alþjóðafundi o. þ. h. En stjórn-
in hefir greitt á tveim árum,
1928 og ’29, 55,000 krónur í
þessu skyni, og er þetta gott
dæmi um hið ábyrgðarlausa sukk
stjórnarinnar. Árið 1930 hefir-
þetta sukk þó sennilega komizt.
allra lengst, en um það liggja
ekki fyrir skýrslur enn.
Bifreiðakostnaður stjórnarinn-
ar hefir verið tíndur saman úr-
reikningum ríkisins, en þar er
honum dreift um allt, til þess að
jminna beri á honum. Hann
reyndist á tveim árum 50,000
krónur. Ekki hefir hann orðið
minni 1930, eða alls að minnsta.
kosti 75,000 krónur.
Þingvallabærinn nýi kostar 60
—70,000 krónur. Ekki er það núi