Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.06.1931, Síða 10

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.06.1931, Síða 10
200 þykir ekki svo afleitt, þegar hungraðir menn eiga hlut að máli. Daginn eftir sagði eg eyja- skeggjum, að eg væri Luckner greifi, skipstjóri á „Hafernin- um“ (Seeadler) meðan á stríðinu stóð, og allir höfðu þeir heyrt mín getið. Bændurnir þyrptust til mín, og eg sagði þeim frá nokk- urum smáviðburðum úr stríðinu, og vildu þeir ákafir fá meira að heyra. , „Jæja, heiðursmenn", sagði eg. „Eg skal segja ykkur nóg af sög- um, og þeim slíkum, að þið hafið aldrei önnur eins firn heyrt. Eg er gamall sjómaður, og þekki fleiri undarlega viðburði á ó- kunnum skipum og ókunnum höfum, heldur en ykkur hefir nokkuru sinni dreymt um“. „Ágætt, greifi. Látið okkur heyra“. „Fyrst set eg eitt skilyrði“. „Hvaða skilyrði er það, greifi“. „Eg skal segja ykkur sögur, ef eg fæ svín fyrir“. „Svín?“ „Já, svín“, og eg hefði getað bætt við: „Svín, til þess að borða rneð matjurtunum ykkár“, en það sagði eg nú ekki. Bændur þessir áttu nóg af [Stefnir svínum, og þess vegna lofuðu þeir, að láta mig fá eitt. Þetta var ljómandi dagur. Eg sagði þeim sögur eins vel og eg gat, og á hinn áhrifamesta hátt, til þess að vinna fyrir svíninu. Eg sagði þeim frá öllum skemmti legum og sorglegum viðburðum, sem eg sjálfur hafði séð eða þá heyrt um, og ef minnið bilaði, eða ef orðin stóðu í mér, þá hugs- aði eg bara til svínsins, og það dugði. Bændurnir fengu marga undarlega hluti að heyra, og þeir nutu þess líka í ríkum mæli. Síð- an komu þeir með svín og slátr- uðu því fyrir mig. Skrokkinn hjuggu þeir í fjóra parta, ogfjór- ir menn af skipinu tóku hvern hlut og báru á skipsfjöl eins og fána, sem þeir héldu yfir höfði sér. Fögnuðurinn var mikill yfir svíninu og matjurtunum, og aldrei höfum við tekið hressi- legar til matar okkar en þá, eink- anlega borðaði kokkurinn mikið- Dag eftir dag sigldum við á mill' um eyjanna, með gamla gunnfán- ann við hún. Hásetarnir höfðu nóg að gera, enda kenndi eg þeii*1 öll tök á skipinu, og vandaði sér- staklega til við þá, í því augna' miði að gera þá að góðum sjó' mönnum. Allan tímann skorti Endurreisn þýzka flotans.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.