Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.06.1931, Qupperneq 94
284
Þingrofið.
[Stefair
Þetta hefir stjómin nú gert, og
með því brotið stjómarskrána,
kem hún hefir unnið eið að, og
traðkað þingræðinu og þar með
lýðræðinu. Hún hefir gert bylt
ing og tekið sér einræðisvald.
3. Hættan. Af blöðum hefir
sést, að lögfræðinga greinir á
um þetta stjórnarskrárbrot. En
sé ágreiningur um slík höfuð-
atriði, ber að fylgja tveim meg-
inreglum:
a. Stjóm má aldrei fram-
kvæma neitt, sem vafi, og það
mikill vafi, leikur á um, hvort
fer í bága við stjórnarskrána.
b. Ef vafi Ieikur á um skýr-
ing slíkra atriða, ber að fylgja
þeirri stefnu, sem eflir vald þings
og þjóðar, en ekki hinni, sem
hleður undir ráðherra og kon-
ung.
Báðar þessar reglur hafa hér
verið brotnar. En með því er
þjóðin í raun réttri svift vernd
stjórnarskrárinnar, og allt okk-
ar lýðfrelsi liggur í lamasessi.
Benda má á eitt dæmi upp á
þann háska, sem hér er á ferð-
um.
Ef menn fallast á skýring
ptjórnarinnar og lögfræðinga
hennar á þessu máli, þá leiðir
það út í hvorki meira né minna
en það, að stjómin getur tekið
sér einræðisvald á Islandi án
þess að fara í bág við stjómar-
skrána, þessa sömu stjórnarskrá,
sem á að tryggja lýðræðið!
Leiðin til þess væri mjög ein-
föld:
Stjórnin rýfur þing eins og nú,
og rekur þingmenn burtu. Hún i
lætur fara fram kosningar og
kallar alþingi saman aftur innan
8 mánaða, samkv. 20. gr. Þenn-
an tíma allan hefir hún ráðið
öllu.
Svo kemur þingið saman, en
jafnskjótt og þing hefir verið
sett, les ráðherra upp konungs-
bréf um nýtt þingrof, og þar með
eru þingmenn aftur sviftir um-
boðum sínum og verða að fara-
Stjórnin fær enn 8 mánaða ein-
veldi.
Þennan leik getur svo stjórn-
in endurtekið. Þó að hún fái ekki
einn einasta fylgismann, getur
hún stjórnað. Hinn ábyrgðarlausí
konungur undirritar þingrofs-
bréfin 8. hvern mánuð og sam-
kvæmt stjórnarskránni, eins og
stjórnin og lögfræðingar hennar
skilja hana, verða þingmenn að
hypja sig á brott.
Þessi skilningur getur ekki náð
nokkurri átt.
Vemdin gegn þessu gerrseð*
er einmitt ákvæði 18. greina*