Læknablaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÚRSKURÐUR SIÐANEFNDAR
2000, til dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur taldi
varaformaður Siðanefndar LI sig vanhæfan til
meðferðar málsins og var þess óskað að dómstjóri
tilnefndi ad hoc formann í Siðanefnd LÍ til meðferðar
máls Högna Óskarssonar gegn Boga Andersen. Með
bréfi dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur, dags. 4.
sept. 2000, var Auður Þorbergsdóttir héraðsdómari
tilefnd sem formaður nefndarinnar til þess að fara
með framangreint mál. Hinn 20. sept. 2000 barst
formanni kæra Högna Óskarssonar, dags. 18. jan.
2000, og bréf Boga Andersen, dags. 29. febr. 2000.
Hinn 3. okt. 2000 afhenti lögmaður Boga Andersen,
Dögg Pálsdóttir hrl., formanni bréf Boga Andersen,
dags. 11. sept. 2000. Sama dag barst formanni
viðbótarkæra frá Högna Óskarssyni, dags. 1. okt.
2000.
Hinn 5. okt. 2000 komu saman á fund í Siðanefnd
LI læknarnir Asgeir Böðvarsson og Haukur S.
Magnússon og Auður Porbergsdóttir héraðsdómari.
Nefndin ákvað að skrifa Högna Óskarssyni og óska
eftir viðbrögðum hans við framangreindu bréfi Boga
Andersen, dags. 11. sept. 2000. Jafnframt var ákveðið
að skrifa lögmanni Boga Andersen bréf og senda
honum ljósrit af viðbótarkæru Högna Óskarssonar.
Akveðið var að nefndin kæmi saman þegar viðbrögð
hefðu borist við bréfunt þessum.
Miðvikudaginn 22. nóvember 2000 komu ofan-
greindir nefndarmenn saman á fund. Þar upplýsti
Ásgeir Böðvarsson að hann væri í stjórn Læknafélags
Norðausturlands, en skv. gr. 6.4 í viðauka við lög LÍ í
kafla B um Siðanefnd LI mega aðalmenn og vara-
menn í Siðanefnd hvorki eiga sæti í stjórn LÍ né í
stjórn svæðafélags. Vegna þessa var stjórn Lækna-
félags íslands skrifað og þess óskað að nýr maður
yrði skipaður sem varamaður í nefndina. Með bréfi
stjórnar LÍ, dags. 7. des. 2000, var tilkynnt að Stefán
B. Matthíasson læknir, sem er varamaður í Siðanefnd
LÍ, kæmi til starfa í nefndinni í stað Ásgeirs
Böðvarssonar læknis.
Þriðjudaginn 12. des. 2000 komu svo saman á fund
í Siðanefndinni þau Haukur S. Magnússon, Stefán B.
Matthíasson og Auður Þorbergsdóttir. Á fundinum
var ákveðið að senda Högna Óskarssyni ljósrit af
bréfi Boga Andersen, dags. 19. okt. 2000, þar sem
Bogi óskar eftir svörum frá Högna Óskarssyni
varðandi ýmis atriði í viðbótarkæru Högna og óska
eftir viðbrögðum Högna. Jafnframt var ákveðið að
óska eftir því við Högna að hann legði fram endurrit
í heild sinni af þeirri fjölntiðlaumfjöllun sem vísað er
til í kæru hans þannig að fram komi allt viðtalið við
Boga Andersen frá 28. des. 1999 og það sem frétta-
maður hafði eftir Boga. Fyrir nefndinni lá jafnframt
bréf Daggar Pálsdóttur hrl., umboðsmanns Boga
Andersen, dags. 30. okt. 2000, þar sem þess var óskað
að Siðanefnd færi fram á það við Högna Óskarsson
að hann svaraði bréfi Boga Andersen, dags. 19. okt.
2000. Jafnframt var þess óskað að Siðanefnd færi
fram á það við Högna Óskarsson að hann legði fram
tiltekin gögn.
Á fundinum var ákveðið að skrifa Dögg Páls-
dóttur og tilkynna hvaða gögnum var óskað eftir frá
Högna. Næsti fundur var ákveðinn 20. des. sl. til þess
að gefa þeim Högna Óskarssyni og Dögg Pálsdóttur
kost á að mæta með þau gögn sem aðilar vildu leggja
fyrir nefndina. Þau Högni Óskarsson og Dögg
Pálsdóttir mættu á fund hjá nefndinni 20. des. sl.
Leitað var sátta án árangurs. Dögg Pálsdóttir lagði
fram greinargerð Boga Andersen, aðilaskýrslu, bréf,
dags. 15. des. sl. og tölvubréf Högna Óskarssonar,
dags. 19. des. sl. Högni Óskarsson lagði fram kafla úr
greinargerð sem lögð var fyrir settan landlækni í
kærumáli Sifjar Konráðsdóttur hrl., f.h. X.
Málinu var frestað til munnlegs málflutnings til
föstudagsins 22. des. sl.
Föstudaginn 22. des. sl. mættu þau Högni
Óskarsson og Dögg Pálsdóttir á fund hjá nefndinni.
Dögg lagði fram svar Boga Andersen við greinargerð
sem Högni lagði fyrir settan landlækni. Síðan fór
fram munnlegur málflutningur og málið tekið til
úrskurðar.
Málsástæður og rökstuðningur kæranda
Kærandi telur, að í viðtali sínu í fréttatíma Ríkis-
útvarpsins þann 28. desember sl. hafi Bogi Andersen
brotið þau ákvæði Codex Ethicus, sem á eftir fara.
Vitnað er í ákvæðin eftir því sem kærandi telur við
eiga í lok hvers kæruatriðis. Ákvæði Codex Ethicus
sem kærandi telur skipta máli í þessari kæru eru:
Meginreglur.
• II. Virðið læknisstarfið og sýnið ábyrgð.
• V. Þekkið eigin takmarkanir og hæfni annarra.
• VII. Virðið hefðir stéttarinnar.
Almenn ákvæði.
• 1. gr., 3. málsgrein. Læknir skal rækja starf sitt án
manngreinarálits, af vandvirkni og samviskusemi.
• 2. gr., 2. mgr. Lækni hlýðir í starfi sínu að fara sem
minnst út fyrir það verksvið sem menntun hans
tekur til.
• 16. gr. Læknir skal tryggja þegar fjölmiðlar leita til
hans að ekki sé annað eftir honum haft en það,
sem hann telur sér samboðið að efni og formi.
Ákvæði um samskipti lækna.
• 29. gr. Lækni er skylt að auðsýna öðrum læknum
drengskap og háttvísi jafnt í viðtali sem umtali,
ráðum sem gerðum og hann skal forðast að kasta
rýrð á þekkingu eða störf annarra lækna.
Lækni er ósæmandi að eiga þátt í eða stuðla að
ráðstöfunum, sem geti leitt til skerðingar á
atvinnuöryggi annars læknis. Telji læknir að
ástæða sé til íhlutunar vegna brots á siðareglum
þessum eða vanhæfni læknis í starfi skal hann snúa
sér til Iandlæknis og stjómar viðkomandi
svæðafélags Læknafélags íslands.
A. Bein ræða Boga.
148 Læknablaðið 2001/87