Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 78

Læknablaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 78
UMRÆÐA & FRÉTTIR / TJÁNINGARFRELSI Frelsí tíl tjáningar og gjörða Þankar vegna samþykktar stjórnar LÍ Þorvaldur Veigar Guðmundsson Höfundur er læknir, PhD og fyrrverandi lækningarforstjóri Landspítalans. Stjórn Læknafélags Islands gerði samþykkt um frelsi til hugsunar og tjáningar og birti í Morgun- blaðinu þann 3. janúar síðastliðinn. Ekki er getið tilefnis, en skilja má af samþykktinni að það hafi verið sá atburður á Landspítala - háskólasjúkrahúsi að læknir var valinn til stjórnunarstarfs, en valið síðar dregið til baka. Ekkert nafn var nefnt og mun ég fylgja því fordæmi með einni undantekningu. Aður en ályktunin birtist hafði Morgunblaðið tekið málið upp á mjög sérstæðan hátt og haldið því fram að um skoðanakúgun væri að ræða. Stjórnendur Land- spítala - háskólasjúkrahúss hafi óvænt komist að skoðun læknisins á einkarekstri í heilbrigðiskerfinu og því hafi boðið verið afturkallað. Petta átti að hafa gerst þegar læknirinn sendi út fréttatilkynningu þar sem kunngerð voru áform einkaaðila um að stofna nýja miðstöð fyrir sérhæfða heilbrigðisþjónustu. I þessu sambandi má minna á að viðkomandi læknir hefur ekki farið dult með skoðanir sínar á einkarekstri í heilbrigðiskerfinu, þvert á móti hefur hann verið einarður talsmaður einkareksturs við hvem sem heyra vildi. Að gera því skóna að stjórnendur Landspítala - háskólasjúkrahúss hafi ekki þekkt skoðanir læknisins er í raun að gera afar lítið úr honum og hans málflutningi. Orðalag ályktunar stjórnar LI bendir til að hún hafi ekki kannað tilefnið sem skyldi og það eru ekki góð vinnubrögð. Lítum á hvað gerðist samkvæmt frásögnum í fjölmiðlum. Læknirinn sendi út fréttatilkynningu þar sem greint var frá ákvörðun um „að stofna félag til að kanna hagkvæmni þess að reisa nýja miðstöð fyrir sérhæfða heilbrigðisþjónustu". Fram kom að margir eiga aðild að félagsstofnuninni en það fór ekki á milli mála að hann var í forystu fyrir hópnum og ætlaði að leggja vinnu í framgang þessa málefnis. í viðtölum í fjölmiðlum sem fylgdu deildi hann á Landspítala - háskólasjúkrahús fyrir að standa sig ekki sem skyldi og valda ekki verkefni sínu þrátt fyrir 20 milljarða króna fjár- veitingu. Hin fyrirhugaða félagsstofnun væri meðal annars til að bæta úr afleiðingum þessarar vangetu. Við skoðun málsins koma að minnsta kosti fjögur atriði fram: 1. Skoðanir læknisins á einkarekstri. 2. Áform um að vinna að stofnun einkafyrirtækis. 3. Vantrú á að stjórnendur Landspítala - háskóla- sjúkrahúss geti leyst verkefnið sem þeim er falið. 4. Læknirinn vill vinna að lausn verkefnisins, - ekki innan Landspítala - háskólasjúkrahúss og með starfsmönnum þess - heldur stofna til þess nýtt félag. Umræðan um þetta atvik verður alröng ef eingöngu er tekið til skoðunar fyrsta atriðið eins og gert var í yfirlýsingu stjórnar LÍ. Þar segir að á Landspítala - háskólasjúkrahúsi eigi að ríkja „akademískt frelsi til hugsunar og tjáningar um þróun heilbrigðisþjónustu hér á landi“. I yfir- lýsingum frá stjórnendum Landspítala - háskóla- sjúkrahúss hafa einnig komið fram skoðanir um það efni. í yfirlýsingu forstjóra Landspítala - há- skólasjúkrahúss í Morgunblaðinu 15. desember síðastliðinn segir að stjórnendur spítalans „virði málfrelsi, skoðanafrelsi og tjáningarfrelsi" og í yfirlýsingu framkvæmdastjóra kennslu og fræða á sama stað segir að enginn dragi í efa frelsi læknisins til þeirra skoðana sem hann hefur gefið til kynna. Ennfremur segir „um þetta eru for- stjórinn og öll framkvæmdastjórnin algerlega sam- mála“. Svo er að sjá að skoðanir stjórnar LI og stjórnenda Landspítala - háskólasjúkrahúss falli saman í þessu. Ef grannt er skoðað er tjáningafrelsi í opinberri umræðu þó oftast takmarkað að einhverju leyti. Miklar deilur hafa orðið um sumar þær skoðanir sem forseti Islands hefur sett fram opinberlega og hvað sé við hæfi að komi fram í opinberum ræðum hans. Varla eru ráðherrar ætíð sammála gerðum annarra ráðherra. Gagnrýni þeir hver annan opin- berlega, hriktir í undirstöðum ríkisstjórnar og eins líklegt að hún falli. Deilumál eru leyst innanhúss, eða að minnsta kosti ekki rædd opinberlega. I mörgum einkafyrirtækjum og jafnvel á stofum lækna er starfsmönnum bannað að ræða utan fyrirtækisins um það er varðar innri starfsemi þess. Með öðrum orðum, við ráðningu og kosningu hafa menn afsalað sér hluta af tjáningarfrelsi sínu. I Codex Ethicus og lögum eru settar takmarkanir á tjáningafrelsi lækna. I Morgunblaðinu var sagt að opinber rekstur og einkarekstur gætu farið saman. Allir sem þekkja til reksturs heilbrigðisþjónustunnar vita að í áratugi hefur hluti sjúkrahúslækna rekið einka- stofur jafnhliða fullu starfi á sjúkrahúsum. Mér er ekki kunnugt um að nokkurs staðar tvinnist saman jafn náið einka- og opinber rekstur, né veit ég dæmi til að nokkurri annarri stétt hafi verið sýndur sá trúnaður að vinna hjá einni stofnun og reka jafnframt eigin starfsemi sem eðli starfsins vegna verður að hluta til að fara fram í dagvinnu 174 Læknablaðið 2001/87 i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.