Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.2001, Side 73

Læknablaðið - 15.02.2001, Side 73
UMRÆÐA & FRÉTTIR / TRYGGINGAMÁL vemd sú, sem fæst með aðild að hóptryggingu Læknafélags íslands og Sameinaða líftrygginga- félagsins, sé góð og á góðum kjörum fyrir þá sem hana fá. Rétt er að árétta að nauðsynlegt er hverjum einstaklingi að huga vandlega að tryggingum sínum og fyrir lækna virðist góður kostur að taka þátt í hóptryggingunni. Rétt er að minna enn á slagorðið að ekki er mögulegt að tryggja eftir á og því er mikilvægt fyrir lækna að gerast aðilar að tryggingunni hið fyrsta eftir útskrift. Rétt er að minna lækna einnig á, að þeir eru aðilar að sterkum lífeyrissjóði þar sem samtrygging okkar er skilyrðislaus bæði hvað varðar örorkutryggingu, makalífeyri og eftirlaun. Tillaga nefndarinnar Nefndin vill eindregið beina því til stjórnar Lækna- félags íslands að vinna að eftirfarandi breytingu á hóptryggingunni. • Nefndin leggur til að allir félagsmenn Læknafélags íslands verði sjálfkrafa aðilar af hóptryggingunni en hverjum og einum sé heimilt að segja sig úr tryggingunni. Tryggingafélagi verði óheimilt að hafna aðild og iðgjöld miðist einungis við aldur. • Það er skoðun nefndarinnar að ef læknar verði sjálfkrafa aðilar að hóptryggingunni muni þeir ekki segja sig úr henni og lækka þannig félagsgjald sitt nema að mjög vandlega íhuguðu máli. Væntanlega munu mun fleiri læknar tryggja sig sem styrkja mun stöðu hópsins í samningaviðræðum við tryggingafélögin. • Nauðsynlegt er einnig að tryggja það að kjör þeirra sem þegar eru aðilar að hóptryggingunni muni ekki versna. Guðmundur Helgi Þórðarson Ísak G. Hallgrímsson Guðmundur J. Elíasson Greiðsla áskriftar að Læknablaðinu Hægt er að greiða áskrift að Læknablaðinu með því að senda greiðslu beint til blaðsins eða greitt með greiðslukorti frá VISA eða Eurocard. Þeir sem búsettir eru erlendis geta lagt greiðsl- una inn á póstgíróreikning nr. 516651. Þeir sem vilja greiða með greiðslukorti þurfa að hringja eða skrifa Læknablaðinu og gefa upp kortanúmer og kennitölu. Sími Læknablaðsins er 564 4104 og heimilisfangið: Hlíðasmára 8, 200 Kópavogi Læknablaðið 2001/87 169

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.