Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.2001, Page 75

Læknablaðið - 15.02.2001, Page 75
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LR Vel heppnuð árshátíð LR Sverrir Bergmann kjörinn heiðursfélagi Árshátíð LR var haldin laugardaginn 20. janúar í lok Læknadaga samkvæmt hefð. Þátttaka var mjög góð og mættu um 500 manns. Þótti kvöldið takast með afbrigðum vel. Tekið var á móti gestum í Broadway með freyðivíni í fordrykk sem borinn var fram í flöskum er báru merki LR ásamt spaklegum kínverskum málsháttum. Formaður LR, Ólafur Þór Ævarsson, bauð gesti velkomna og kynnti veislustjóra kvöldsins þau Katrínu Fjeldsted og Snorra Einarsson. Heiðursgestir kvöldsins voru forseti lækna- deildar Reynir Tómas Geirsson og frú. Árni Björnsson heiðursfélagi LR var viðstaddur ásamt eiginkonu sinni. Á árshátíðinni var Sverrir Berg- mann gerður að heiðursfélaga LR og honum afhent heiðursskjal og þökkuð mörg og farsæl störf í þágu læknasamtakanna. Matseðillinn var glæsilegur og matur góður. í aðalrétt var borin fram önd frá Frakklandi og var hún einstakalega ljúffeng. Boðið var upp á vönduð skemmtiatriði. Við komu lék hin þekkta hljóm- sveit Guitar Islandcio fyrir gesti. Örn Árnason og Jónas Þórir skemmtu með söng og leik með miklum tilþrifum og sýndur var glæsilegur argentínskur dans. Jón Steinar og félagar úr hópi lækna stjórnuðu þróttmiklum fjöldasöng. Á eftir var stíginn dans eftir hljómfalli Milljónamæring- anna með söngvarana Bjarna Arason og Ragnar Bjarnason í fararbroddi. Ánægjulegt var hversu góð stemming var á staðnum og þátttaka góð. Ljóst er að sú hefð að skólafélagarnir úr læknadeildinni sitji saman við borð og skemmti sér saman þetta kvöld er aftur að festast í sessi. Sérstaklega var ánægjulegt að ung- læknarnir voru með og einnig margir læknar af landsbyggðinni. Einnig er vitað að nokkrir íslenskir læknar búsettir erlendis komu heim sérstaklega til að skemmta sér með okkur þetta kvöld. Er vel til þess að vita. Ólafur Þór Ævarsson formaður Læknafélags Reykjavíkur Margrél Georgsdóttir stjórnarmaður í LR, Sverrir Bergmann nýkjörinn heiðursfélaga LR og Runólfur Pálsson stjórnarmaður í LR hlýða á formanninn ÓlafÞór Ævarsson ávarpa Sverri áður en honum var afhent heiðursskjalið. Allar ljósm.: Inga Sólveig Friðjónsdóttir. Ársháttðargestir: Þorvaldur Ingvarsson, Hannes Petersen, Rolf Johannsson frá Lundi og eiginkona hans, Harpa Kristjánsdóttir eiginkona Hannesar og Rúna Alexandersdóltir eiginkona Þorvaldar. Veislustjórarnir Katrín Fjeldsted og Snorri Einarsson. Læknablaðið 2001/87 171

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.