Læknablaðið - 15.02.2001, Page 75
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LR
Vel heppnuð
árshátíð LR
Sverrir Bergmann
kjörinn heiðursfélagi
Árshátíð LR var haldin laugardaginn 20.
janúar í lok Læknadaga samkvæmt hefð. Þátttaka
var mjög góð og mættu um 500 manns. Þótti
kvöldið takast með afbrigðum vel.
Tekið var á móti gestum í Broadway með
freyðivíni í fordrykk sem borinn var fram í
flöskum er báru merki LR ásamt spaklegum
kínverskum málsháttum. Formaður LR, Ólafur
Þór Ævarsson, bauð gesti velkomna og kynnti
veislustjóra kvöldsins þau Katrínu Fjeldsted og
Snorra Einarsson.
Heiðursgestir kvöldsins voru forseti lækna-
deildar Reynir Tómas Geirsson og frú. Árni
Björnsson heiðursfélagi LR var viðstaddur ásamt
eiginkonu sinni. Á árshátíðinni var Sverrir Berg-
mann gerður að heiðursfélaga LR og honum
afhent heiðursskjal og þökkuð mörg og farsæl
störf í þágu læknasamtakanna.
Matseðillinn var glæsilegur og matur góður. í
aðalrétt var borin fram önd frá Frakklandi og var
hún einstakalega ljúffeng. Boðið var upp á vönduð
skemmtiatriði. Við komu lék hin þekkta hljóm-
sveit Guitar Islandcio fyrir gesti. Örn Árnason og
Jónas Þórir skemmtu með söng og leik með
miklum tilþrifum og sýndur var glæsilegur
argentínskur dans. Jón Steinar og félagar úr hópi
lækna stjórnuðu þróttmiklum fjöldasöng. Á eftir
var stíginn dans eftir hljómfalli Milljónamæring-
anna með söngvarana Bjarna Arason og Ragnar
Bjarnason í fararbroddi.
Ánægjulegt var hversu góð stemming var á
staðnum og þátttaka góð. Ljóst er að sú hefð að
skólafélagarnir úr læknadeildinni sitji saman við
borð og skemmti sér saman þetta kvöld er aftur að
festast í sessi. Sérstaklega var ánægjulegt að ung-
læknarnir voru með og einnig margir læknar af
landsbyggðinni. Einnig er vitað að nokkrir
íslenskir læknar búsettir erlendis komu heim
sérstaklega til að skemmta sér með okkur þetta
kvöld. Er vel til þess að vita.
Ólafur Þór Ævarsson
formaður Læknafélags Reykjavíkur
Margrél Georgsdóttir
stjórnarmaður í LR,
Sverrir Bergmann
nýkjörinn heiðursfélaga
LR og Runólfur Pálsson
stjórnarmaður í LR hlýða
á formanninn ÓlafÞór
Ævarsson ávarpa Sverri
áður en honum var afhent
heiðursskjalið.
Allar ljósm.: Inga Sólveig
Friðjónsdóttir.
Ársháttðargestir: Þorvaldur Ingvarsson, Hannes Petersen, Rolf Johannsson frá Lundi og
eiginkona hans, Harpa Kristjánsdóttir eiginkona Hannesar og Rúna Alexandersdóltir
eiginkona Þorvaldar.
Veislustjórarnir Katrín Fjeldsted og Snorri Einarsson.
Læknablaðið 2001/87 171