Læknablaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 40
UMRÆÐA & FRÉTTIR / A F SJÓNARHÓLI STJÓRNAR
Hugleiðingar um rekstrarform
heilbrígðisþjónustu á íslandi
Eyþór
Björgvinsson
Höfundur er sérfræðingur í
geislagreiningu og gjaldkeri
Læknafélags íslands.
Sjónarmið þau er fram koma í
pistlunum Af sjónarhóli
stjórnar eru höfundar hverju
sinni og ber ekki að taka sem
samþykktir stjórnar LÍ.
Frá þvi' að ég skrifaði pistil í Læknablaðið um
sama efni fyrir einu ári, hefur orðið mikil umræða um
einkarekstur í heilbrigðisgeiranum og þá sérstaklega
í tengslum við einkasjúkrahús. Fulitrúar nokkurra
einkarekinna læknastöðva og hjúkrunafræðingar
hófu undirbúning að því að koma á fót nokkurs
konar heilsukringlu, það er sameiginlegu húsnæði
með sjálfstæðum rekstrareiningum með fjölbreyti-
legri heilbrigðisþjónustu.
Petta er að mörgu leyti svipað fyrirkomulag og
þegar kaupmenn komu Kringlunni á fót.
Þegar farið er af stað með svona vinnu verður
einnig að hugsa til framtíðar. Það verður að vera
möguleiki á þróun þannig að gera megi flóknari
aðgerðir og og auka öryggið með því að veita sólar-
hringsþjónustu.
Helsti ávinningur af slíku samstarfi gæti orðið:
• Aðgengi fyrir sjúklinga að þjónustu verður ein-
faldara og þeir ættu að geta fengið úrlausn sinna
mála í einni ferð, þannig að vinnutap og snúningar
yrðu sem minnstir.
• Tækifæri gæfist til að hanna húsnæðið frá upphafi
með tilliti til þjónustu og aðgengis.
• Hægt er að auka hagkvæmni og samnýtingu, svipað
og verið er að gera með sameiningu spítalanna í
eilt háskólasjúkrahús.
• Samvinna fagfólks myndi aukast.
• Það ætti að vera hægt að auka öryggi og fjölbreytni
þjónustunnar enn meir en áður, þar sem þessi
þróun gefur tækifæri til aukinnar eftirmeðferðar,
til dæmis eftir aðgerðir.
• Þarna gefst möguleiki á sjúkrahús- og eða sjúkra-
hótelsþjónustu.
Helstu hindranir gætu orðið:
• Upphafskostnaður og kostnaður meðan á breyting-
um stendur.
• Hræðsla um að sjálfstæði eininganna geti glatast.
• Gamla tuggan, það er auðveldast að hjakka í sama
farinu og breyta engu.
• Neikvæð pólítísk umræða og viðbrögð ríkskerfisins.
Þegar sólarhringsþjónusta er nefnd rísa
pólitíkusar og kollegar upp á afturfæturna og hrópa
úlfur, úlfur, einkasjúkrahús. Orðið einkasjúkrahús er
orðið einhvers konar skammaryrði og tabú.
I umræðunni er ruglað saman grundvallar-
atriðum. Einkareknu sjúkrahúsi er blandað saman
við einkatryggingar eða að sjúklingar greiði alfarið
fyrir alla þjónustu úr eigin vasa. Þá verður mönnum
tíðrætt um bandaríska heilbrigðiskerfið og efnahags-
lega mismunun sjúklinga.
Ég held að skoðun flestra sé, að tryggingamar eigi
áfram að vera á samfélagslegum grunni, þannig að
öllum einstaklingum sé tryggður sem jafnastur
Viðræðurlok Læknafélags Islands og
Til félaga í Lœknafélagi íslands.
Kópavogi 23. janúar 2001
Viðræður Læknafélags íslands og Islenskrar
erfðagreiningar hafa nú staðið formlega í tæpa 11
mánuði. Hlé varð á þeim í nokkrar vikur á liðnu
sumri eins og kunnugt er. Óþarfi er að rekja sögu
þeirra fram yfir aðalfund LI á Isafirði s.l. sumar.
Formaður LÍ gerði ykkur grein fyrir
gangi þeirra með bréfi í júní s.l. og
frá aðalfundi var vandlega greint í
Læknablaðinu á sínum tíma. Rétt er
þó að rifja upp ályktanir aðal-
fundarins um gagnagrunnsmálið, en
þær urðu þrjár. I hinni fyrstu er
„áréttað að lögum um gagnagrunn á
heilbrigðissviði sé áfátt, þar sem
Bréf þetta var ekki skrifað til opinberrar
birtingar. Það sem íslensk erfðagreining
kaus að fara með efni þess í fjölmiðla,
hef ég farið þess á leit við Læknablaðið
að birta það í heild.
Sigurbjöm Sveinsson
ekki sé gert ráð fyrir skriflegu samþykki sjúklings.“ í
annarri ályktuninni lýsir fundurinn yfir „fullum
stuðningi við stjóm félagsins við þá vinnu, sem hún
hefur lagt í til að fá leyfishafa miðlægs gagnagrunns á
heilbrigðissviði til að afla gagna í grunninn með
viðunandi hætti.“ í þeirri þriðju er stjórninni falið að
„leita nýrra leiða við öflun samþykkis til
læknisfræðilegra rannsókna á upplýsingum í
sjúkraskrám. ...eftir tiltekinn dag gildi skrifleg
heimild sjúklinga....og að þróaðar verði aðferðir til
að eyða upplýsingum úr gagnagrunnum skv. ósk
einstaklinga eða forráðamanna þeirra."
í framhaldi aðalfundarins fór stjórnin þess á leit
við ÍE, að viðræður, sem slitið hafði verið fyrri
hluta ágústmánaðar, yrðu teknar upp að nýju.
Forstjóri ÍE féllst strax á það. Átti Sigurbjörn
Sveinsson síðan tvo fundi með Kára Stefánssyni. Á
hinum fyrri urðu þeir sammála um að finna þyrfti
136 Læknablaðið 2001/87