Læknablaðið - 15.02.2001, Page 73
UMRÆÐA & FRÉTTIR / TRYGGINGAMÁL
vemd sú, sem fæst með aðild að hóptryggingu
Læknafélags íslands og Sameinaða líftrygginga-
félagsins, sé góð og á góðum kjörum fyrir þá sem
hana fá. Rétt er að árétta að nauðsynlegt er hverjum
einstaklingi að huga vandlega að tryggingum sínum
og fyrir lækna virðist góður kostur að taka þátt í
hóptryggingunni.
Rétt er að minna enn á slagorðið að ekki er
mögulegt að tryggja eftir á og því er mikilvægt fyrir
lækna að gerast aðilar að tryggingunni hið fyrsta
eftir útskrift.
Rétt er að minna lækna einnig á, að þeir eru
aðilar að sterkum lífeyrissjóði þar sem
samtrygging okkar er skilyrðislaus bæði hvað
varðar örorkutryggingu, makalífeyri og eftirlaun.
Tillaga nefndarinnar
Nefndin vill eindregið beina því til stjórnar Lækna-
félags íslands að vinna að eftirfarandi breytingu á
hóptryggingunni.
• Nefndin leggur til að allir félagsmenn Læknafélags
íslands verði sjálfkrafa aðilar af hóptryggingunni
en hverjum og einum sé heimilt að segja sig úr
tryggingunni. Tryggingafélagi verði óheimilt að
hafna aðild og iðgjöld miðist einungis við aldur.
• Það er skoðun nefndarinnar að ef læknar verði
sjálfkrafa aðilar að hóptryggingunni muni þeir ekki
segja sig úr henni og lækka þannig félagsgjald sitt
nema að mjög vandlega íhuguðu máli. Væntanlega
munu mun fleiri læknar tryggja sig sem styrkja mun
stöðu hópsins í samningaviðræðum við
tryggingafélögin.
• Nauðsynlegt er einnig að tryggja það að kjör þeirra
sem þegar eru aðilar að hóptryggingunni muni ekki
versna.
Guðmundur Helgi Þórðarson
Ísak G. Hallgrímsson
Guðmundur J. Elíasson
Greiðsla áskriftar að
Læknablaðinu
Hægt er að greiða áskrift að Læknablaðinu með því að senda greiðslu beint til blaðsins eða
greitt með greiðslukorti frá VISA eða Eurocard. Þeir sem búsettir eru erlendis geta lagt greiðsl-
una inn á póstgíróreikning nr. 516651.
Þeir sem vilja greiða með greiðslukorti þurfa að hringja eða skrifa Læknablaðinu og gefa upp
kortanúmer og kennitölu.
Sími Læknablaðsins er
564 4104
og heimilisfangið:
Hlíðasmára 8,
200 Kópavogi
Læknablaðið 2001/87 169