Frjáls verslun - 01.07.2013, Blaðsíða 15
FRJÁLS VERSLUN 7. 2013 15
Thomas Möller segir að allir þekki þá góðu tilfinningu sem fylgir því að upp
götva nýja tækni sem virkar
strax. Hann nefnir sem dæmi
far símann, tölvupóstinn, mynda
vél í símanum, googleleitarvél
ina eða excelreikninn.
„Þetta virkaði strax og nýttist
um leið. Þannig virkaði strax að
greiða reikninga í netbanka og
bensínkaup í sjálfsala og svo
er hægt að kaupa leikhúsmiða
og tónlist á netinu. Þá virkaði
strax að fá kvikmyndir leigðar í
gegnum netið.“
Thomas bendir á að um 95%
ferðamanna kaupi flugmiða og
leigi bílaleigubíla í gegnum netið
eftir að leitarvélar hafa fundið
ódýrasta kostinn. „Rástímar í
golfi eru nú bókaðir á netinu,
samskipti eflast með Facebook,
tengslanetið batnar með Linked
in og ókeypis símtöl eru orðin
sjálfsögð með Skype.
Þannig á tæknin að hjálpa okk
ur og við sjáum strax hvað virkar.
Milljónir manna um allan heim
hlusta á hljóðbækur í símanum
og lesa rafbækur á skjánum og
sjónvarps og útvarpsefni fer í
auknum mæli í gegnum netið og
dagblöðin eru í auknum mæli
orðin netmiðlar. Rafknúnir bílar
munu í auknum mæli sjást á
götum, enda virka þeir strax.
Það sem er tímanna tákn í dag
er þessi nýja tækni sem stöðugt
kemur á óvart og nýtist strax.“
tHomas mölleR
– framkvæmdastjóri Rýmis
STJÓRNUN
Ásmundur Helgason segir að hugtakið „mörk un“ (e. branding)
sé mikið í umræðunni, t.d. á
vörumerkinu Ísland. Hann segir
að sterkt vörumerki með skýra
mörkun geri ýmislegt fyrir þá
sem eiga það.
„Það verður auðveldara að
bera kennsl á framleiðandann
og uppruna vörumerkisins.
Þetta skapar samkeppnisfor
skot með ýmsum hætti. Ef
vörumerkið er sterkt er kannski
svigrúm fyrir hærra verð – eftir
því sem vörumerkið er „sterk
ara“ er kannski auðveldara að
koma skýrum skilaboðum til
skila um ákveðin gæði.
Eitt hlutverk sterks vöru merkis
er að koma upp einhvers konar
aðgangshindrunum inn á
markaðinn sem það starfar á.
Það eru því greinilega margir
kostir við sterk vörumerki.
Ef maður veltir fyrir sér hlutum
sem Íslendingar kaupa núna að
hausti þá er til dæmis ekki mikil
aðgreining milli vöru merkja í
vetrardekkjum – það eru meira
en tuttugu ólík vörumerki að
keppa á dekkjamarkaðinum –
stílabókum eða skólatöskum.
Það eru tækifæri fyrir seljend
ur á þessum mörkuðum að
skapa vörumerki sínu sterka
aðgreiningu og sterka mörkun
á sinni vöru, samkeppnisfor
skot, tryggð viðskiptavina og
jafnvel hærra verð.“
Sterkt vörumerki skapar
samkeppnisforskot
ÁsmunduR Helgason
– markaðsfræð ingur hjá dynamo
AUGLÝSINGAR
Hvað eiga Lamar Muse, Howard Putnam, Herb Kelleher og
Gary Kelly sameiginlegt? Þeir
kump ánar hafa allir verið í for
sæti bandaríska flugfélagsins
Southwest Airlines. Það væri í
sjálfu sér ekki í frásögur færandi
nema vegna þess að félagið
hefur verið rekið með hagnaði
í fjörutíu ár samfellt. Það er
ekk ert smáafrek í bandarískum
flugiðnaði sem hefur á köflum
mátt búa við rekstrarerfiðleika
og gjaldþrot.
Herb er óneitanlega aðalmað
urinn en hann tók þátt í að stofna
fyrirtækið, hvers viðskipta
hug mynd var hripuð niður á
servíettu á matsölustað. Tímabil
töflureikna og hnausþykkra
Power Pointglærupakka var
ekki runnið upp. Og þeir stofn
endurnir höfðu einfaldan smekk:
Fljúga með farþega beint á milli
staða (pointtopoint), bjóða
takmarkaða þjónustu og nota
eina gerð flugvéla. Flugvélar
fyrirtækisins eru gríðarlega vel
nýttar og í upphafi níunda ára
tug arins setti fyrirtækið fram, í
frjáls legri þýðingu, slagorðið
„Tíu mínútna tangó“. Ofurá hersla
var lögð á að koma far þegum frá
borði, fylla vélarn ar aftur og ýta
frá stæði á ör skömm um tíma.
Forveri Herbs í starfi, Howard
Putnam, setti fram í nokkrum
liðum grundvallaratriði í rekstri
fyrirtækisins. Á þeim rúmu
þrjátíu árum sem síðan eru liðin
hafa fáar vinnureglnanna breyst
að ráði. Eitt af því sem breyttist
var að vikið var frá reglunni um
að gera ekki samstarfssamn
inga við önnur flugfélög þegar
Southwest gerði samning við
Icelandair árið 1996.
Herb sjálfur var uppfinninga
sam ur í starfi og byggði upp og
hlúði að góðum fyrirtækjabrag.
Starfsfólkið var honum hugleikið
og eitt sinn þegar stórbokkar í
viðskiptafræðum spurðu hvað
kæmi fyrst í rekstrinum – hlut
hafar, viðskiptavinir eða starfs
fólk – svaraði Herb því til að það
væri starfsfólk og ef hlúð væri
að því kæmi hitt af sjálfu sér.
Sú saga er sögð af Herb að
hann hafi eitt sinn vísað farþega
úr vél fyrirtækisins með þeim
orðum að starfsfólkið ætti ekki
skilið að hafa svo leiðinlegan
farþega um borð.“
loftuR ólafsson
– sjóðstjóri hjá sameinaða lífeyrissjóðnum
ERLENDI
FORSTJÓRINN
Fljúgum hærra
Þetta virkar!
„Það verður auð -
veld ara að bera
kennsl á fram leið -
andann og upp runa
vöru merkisins.
Þetta skapar sam -
keppnis for skot með
ýmsum hætti.