Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Qupperneq 12

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Qupperneq 12
2 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR neitt annað en innrásir Gerniana, er Rómaríki var að velli lagt (Thomas Carlyle: The Present Time). Vér sem lítum þessi tíðindi í Ijósi heillar aldarþróunar, sjáurn Jiau miklu skýrar en samtíðarmennirnir. Vér skiljum margt, sem þeim var hulið. Einkum skiljum vér betur ósigra þessara byltinga, ]>ví að þess skal strax getið, að byltingar ársins 1848 biðu allar ósigur. Þegar fellibylnum slotaði, risu hin gömlu máttarvöld öll á fætur aftur, kannski dálítið ringluð og ekki alveg eins kotroskin og áður, en þó með slíku lífsmarki, að margir ætluðu, að í raun- inni hefði ekkert skeð. Byltingin sjálf lá í valnum, kappar hennar dauðir eða flúnir, vopn þeirra brotin, pólitískar og félagslegar hugsjónir byltingarinnar helskotnar. Sumir samtíðarmannanna voru þó svo langskyggnir, að ]>eir létu ekki moldviðri líðandi stund- ar villa sér sýn og hrópuðu fullum rómi: Byltingin er dauð! Liji byltingin! Vér sem nú lifum, vitum, að þessir menn höfðu á réttu að standa. Osigrar byltinganna 1848 voru ekki megininntak hinna miklu viðburða. Megininntak þessara viðburða var í því fólgið, að þjóðfélagsleg og þjóðernisleg vandamál nútímans voru lögð fram til úrlausnar. Byltingarmennirnir frá 1848 fengu ekki leyst þau með þeim efnum, er þeim stóðu til boða, né með þeim hætti, er þeim sýndist líklegastur til sigurs. En vandamálin. sem þeir glímdu við, voru ekki með því úr sögunni. I heila öld hafa niðjar þeirra leitazt við að leysa þessa hnúta, og suma þeirra hafa þeir livorki leyst né höggvið enn í dag. Febrúarbyltingin var tvíþætt að öllu eðli: þjóðjélagsleg og þjóð- ernisleg. A Frakklandi birtist |)jóðfélagslegt eðli byltingarinnar í skýrustu mynd. 1 fæðingarlandi sínu breytist byltingin áður en var- ir í harðvítuga stéttabaráttu verkalýðs og borgarastéttar og lýkur með blóðugri borgarastyrjöld milli þessara tveggja stétta og sigri borgarastéttarinnar. Þessi þáttur febrúarbyltingarinnar er staðsett- ur í Parísarborg, og leikurinn berst tæplega út fyrir lögsagnarum- dæmi hinnar frönsku höfuðborgar. Hinn þjóðernislegi þátlur febrúarbyltingarinnar birtist skýrast á meginlandi Evrópu vestan frá Rinarfljóli austur að Vislu, norðan frá Eystrasalti og Norðursjó suður að Miðjarðarhafi. Þó er þetta
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.