Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Side 13

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Side 13
FYRIR HUNDRAÐ ÁRUM 3 ekki svo að skilja, að félagslegra átaka gæti ekki í þjóðfrelsishreyf- ingum hinna germönsku, rómönsku og slafnesku þjóða meginlands- ins. Stéttabaráttan gengur þar eins og þung undiralda undir brot- sjóum þjóðfrelsishreyfingarinnar og veldur að lokum úrslitum um örlög byltingarinnar á meginlandi Evrópu. 2. Milli júlíbyltingar Frakklands og febrúarbyltingarinnar liðu 18 ár borgaralegs konungdæmis Loðvíks Filippusar af Orléansætt. í júlímánuði 1830 hafði frönsk borgarastétt óttazt svo rnjög samsæri binna afturhaldssömu hirðmanna Karls X. af Bourbonaætt, að hún lokaði verksmiðjum sínum og vinnustofum og rak verkalýð og stúd- enta út á götuvígin. Eftir þriggja daga viðureign var konunglaust á Frakklandi. l'eir sem barizt höfðu á götuvígjunum hefðu helzt kosið lýðveldið, en leiðtogum Orléanistaflokksins tókst að lauma Loðvík Filippusi upp í konungshásæti Bourbonaættarinnar. Loðvík Filippus var kominn af Filippusi hertoga af Orléans, bróður Loð- víks XIV., og hafði þessi yngri grein Bourbonaættarinnar lengi litið löngunaraugum til hásætisins. Faðir Loðvíks Filippusar hafði tekið þátt í byltingunni 1789 í flokki þriðju stéttar, afsalað sér titli sín- um og kallað sig Filippus Égalité og dreymt stóra drauma um að erfa ríki hinna ófarsælu frænda sinna. Loðvík Filippus erfði bæði drauma föður síns og ríki Bourbona. Stjórnarskrá Frakklands kall- aði hann „konung Frakka af guðs náð og fyrir vilja þjóðarinnar“, svo að hann mætti jafnan muna, að götuvígi Parísarborgar höfðu lyft honum í fallvaltasta konungsstól álfunnar. En þessi þjóðarvilji var bundinn við örlítið hrot hinnar frönsku þjóðar. Samkvæmt stjórnarskránni skyldi þingið vera í tveimur deildum. I efri deild sátu konungkjörnir þingmenn ævilangt, og var svo fyrir mælt, að konungur skyldi velja þá úr hópi bankastjóra, verzlunarstjóra og verksmiðjueiganda. Kosningaréttur til fulltrúadeildarinnar var bundinn við svo háan tekjuskatt, að tr.ta kjósenda nam ekki nema 200—240.000 eða lr/ allra íbúa Fracklands. Til verndar þessu fjárbundna stjórnarfari og borgaralega konungdæmi var stofnaður borgaralegur her, Þjóðvaniarliðið. Allir skattgreiðendur Frakklands

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.