Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Page 30

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Page 30
20 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR og bæklingar sett undir ritskoðun. Þýzka bandalagið skipaði 7 manna eftirlitsnefnd í Mainz til þess að rannsaka hverskonar fé- lagsskap lýðæsingamanna. Þessi rosalegi vígbúnaður Þýzka sambandsins gegn stúdentum hefði í raun og veru verið aðeins broslegur, ef annað og meira hefði ekki búið undir. En Metternich ætlaði sér um leið að koma höggi á hina frjálslyndu hreyfingu í þeim ríkjum Þýzka sambandsins, er bjuggu við þingbundið stjórnarfar og þar sem málfrelsi var að minnsta kosti að nokkru leyti tryggt á ráðgefandi þingum. Þetta tókst þó ekki fyrst í stað, og því urðu hinir akademísku borgarar að taka við löðrungunum. En júlíbylting Frakklands 1830 ýtti undir þjóðfrelsishreyfingu Þýzkalands, og nokkur fleiri ríki í Þýzka sam- bandinu þorðu ekki annað en að gefa þegnum sínum stjórnarskrá og ráðgefandi þing, svo sem Braunschweig, Hessen-Kassel, Saxland, Hannover o. fl. Tveimur árum síðar samþykkti Þýzka sambandið að skipa nefnd, er hafa skyldi eftirlit með starfsemi ráðgefandi þinga, er sett höfðu verið á stofn í einstökum ríkjum. Pólitísk félög og samkomur voru bönnuð, engin skyldi mega gróðursetja frelsis- tré né bera pólitíska fánaliti eða önnur einkenni. Ef þegnar einhvers ríkis neituðu að greiða lögboðna skatta, skyldi sambandið kúga þá til hlýðni með hervaldi. Með þessum ráðstöfunum tókst að færa þýzka þjóðfrelsishreyfingu í fjötra hin næstu ár. En eftir 1840 tekur aftur að lifna yfir henni. Þá eru það ekki lengur umkomulausir stúdentar og prófessorar, er bera hana uppi, heldur rísandi stór- borgarastétt, sem krefst atvinnufrelsis og stjórnmálafrelsis á grund- velli sameiginlegs föðurlands. Þá fyrst fékk hin þýzka þjóðfrelsis- hreyfing svo mikinn byr undir vængi, að hin gömlu máttarvöld Þýzka sambandsins gátu ekki kæft hana með tukthússsamþykktum sendiherra sinna. 8. Febrúarbyltingunni hefði ekki tekizt að vekja þýzku þjóðina, hinn þungsvæfa Mikkael með nátthúfuna niður fyrir augu, ef bylt- ingaröflin hefðu ekki verið búin að vinna verk sitt í kyrrþey. Bylt- ingar verða yfirleitt ekki fluttar í önnur lönd nema að jarðvegur

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.