Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Side 31

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1948, Side 31
FYRJR IIUNDRAÐ ÁRUM 21 sé íyrir þær þar. Hið þýzka þjóðfélag var hlaðið félagslegum og ] jóðernislegum andstæðum, er hlutu að síga saman í trylltum leik, þegar minnst varði. Prússneska borgarastéttin gerðist æ djarfmálli við konung sinn, sem virtist ekki enn hafa áttað sig á því, að dagar Friðriks Barbarossa voru ekki lengur. I aprilmánuði 1847 hafði Friðrik Vilhjálmur IV. Prússakonungur orðið að kveðja fulltrúa stéttanna á landsþing til að biðja þá um að veita stjórninni trygg- ingu fyrir láni lil járnbrautarlagninga. Við það tækifæri komst konungur svo að orði í hásætisræðunni: „Aldrei mun neinn mann- legur máttur fá Mig til að breyta samskiptum þjóðar og þjóðhöfð- ingja í venjubundin, þingbundin samskipti, og Eg mun aldrei játast undir það, að ritað blað muni komast upp á milli drottins vors á himrium og þessa lands, eins og önnur forsjón, til þess að stjórna með lagastöfum sínum og koma í stað binna fornu, heilögu tryggða- banda.“ En fulltrúarnir höfðu hugsað sér að leggja allt önnur bönd á stjórnina. Þeir kröfðust prentfrelsis, reglubundinnar þingsetu og eftirlits með fjárhagnum. Og er ekki dró saman með þingi og stjórn, sendi konungur þingið heim. Væri ekki friðvænlegt um að litast í Prússlandi, þar sem borgara- •stéttin bjó sig til að kollvarpa einveldinu, þá var hagur Austur- ríkis enn verri. í október 1847 komst Metternich, hinn aldraði kanslari Austurríkiskeisara, svo að orði, að Austurríki væri hel- sjúkt ríki, mein þess yrði ekki læknað. Það voru hörð orð í munni þess manns, sem um nærri mannsaldursskeið hafði kallað sig lækn- inn á spítala álfunnar! Hið víðlenda Dónárríki Habsborgara drotn- aði yfir nærri 38 milljónum manna. Af þeim voru aðeins rúmar 7 milljónir af þýzku kyni, hinir voru um 17 millj. Slafa, rúmar 5 millj. Itala, 5 millj. Ungverja og um 2 millj. Rúmena, auk fjölda annarra þjóðabrota. Svo kostnaðarsamt var þetta stórveldi orðið, að því lá við gjaldþroti og lifði að nokkru leyti á náð Rothschild- ættarinnar. Það var vitað, að hinar sundurleitu þjóðir Dónárríkis- ins mundu flestar ef ekki allar hefja uppreisn og krefjast sjálfstæðis eða sjálfsforræðis á þeirri stundu, er sameiningarmál Þýzkalands kæmist á dagskrá. Og því var ekki nema eðlilegt, að Austurríki héldi Þýzka sambandinu í járngreipum og kæfði í fæðingunni sér-

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.